
Jæja þá er erfinginn komin í heiminn. Sonur minn fæddist þann 31. júlí 2009. Ég rifnaði hins vegar svo mikið við fæðingu að ég þurfti að fara á sængurlegu. Brjóstgjöfin gekk því miður ekki vel í byrjun og sonurinn fékk guluna sem framlengdi dvölina all nokkuð. Sonurinn þurfti að fara í ljósakassa og strangt brjóstgjafaprógramm í 2 nætur og einn dag. Við fengum að fara heim í gær og fórum 5 vikna skóðun í dag.
Við fæðingu var hann 3180 gr og 49 cm. Við mælingu í 5 daga skoðun var hann 3205 gr og braggast því vel.
Myndir má finna
hér
Vika+1 dagur í áætlaðan fæðingadag:
Jæja,
Búin að fá úr prófunum og náði báðum fögunum með 9 og 8 svo ég er bara ánægð með það.
Ristillinn er því miður bólgin neðst og gengur erfilega að losna við þær bólgur.
En það eru ekki nema 10 vikur í litla erfingjan og svona lítur Elsan út ásamt bumbubúa bara svona fyrir þá sem sjá mig ekki reglulega:

Jæja, langt síðan ég hef skrifað. Vorið á næsta leiti. Ég sé vorlaukana vera gægjast upp.
Af okkur er ýmislegt að frétta.
Ég er í masternámi í tölvunarfræði í Háskóla Íslands og Gunnar er að vinna hjá Tölvumiðlun.
Í gær giftum við okkur líka loksins :) Bara fámennt og góðmennt brúðkaup, semsagt við og foreldrar okkar. Myndir af okkur frá því í gær
hérSíðan er vona á litlum erfingja 1. ágúst og má finna sónar myndir af honum
hér
Jæja sumarið komið og túlípanarnir mínir líka :)

Svo tókst mér loksins að gera hinar fullkomnu frönsku makkarónur. La Dureé hvað?
En þessar eru gular með appelsínukremi.




Hér eru þær í ofninum:

Fleiri makkarónur, súkkulæði og jarðaberja:

Gleðilegt nýtt ár!!

Læt fylgja með mynd sem nágranninn sendi af garðinum okkar á jóladag.
Jæja, þá erum við komin frá París og búin með formúluferðina.
Elsan var að setja inn myndir frá því í sumar og úr Parísarferðinni.
Jæja fór í gær í
ratleik Hafnarfjarðar. Reyndum að fara Léttfeta í fyrra með austurríska fjölskyldu með okkur en það gekk lítið þá þó það væri styttra á milli staða sem þurfti að finna en nú. Þar sem við fundum ekki spjöldin þrátt fyrir að telja okkur hafa fundið staðina.
Núna er hins vegar mun lengri vegalendir á milli staða og við borgarbúarnir reyndum aftur. Okkar þekking á umhverfinu var ekki neitt að rokka. En við náðum á endanum að finna fyrstu þrjá staðina í Léttfeta (8 staðir alls). Þetta tók okkur hins vegar alveg 5 tíma, þ.e. labba þetta allt og svo aftur til baka í bílinn. Þannig við vorum orðin vel þreytt í fótunum en stolt yfir því að hafa loksins fundið spjöldin :)
Annars ætlar nú Gunni í maraþon Glitinis svo það er eins gott fyrir hann að vera í formi.