Myndirnar mínar |
Það hefur lengi verið ein mín uppáhaldsiðja þegar ekki fellur annað til að fara út í náttúruna með myndavélina og smella af. Ég hef að vísu ekki birt mikið af þessum myndum nema að ég hélt einu sinni sýningu á fimm ljósmyndum í röð á Kaffi Krús á Selfossi undir heitinu "Fífan fýkur". Siðan hefur alltaf staðið til að endurtaka þann leik en minna orðið úr framkvæmdum svo núna nota ég þá veraldarvefinn í staðinn til að halda sýningar. Ef til vill breyti ég þeim stöku sinnum, en hér er fyrsta sýningin. Ég áskil mér fullan höfundarrétt að myndunum og treysti því að hann verðii virtur. Smelltu á hverja mynd fyrir sig eða byrjaðu í vinstra horninu efst til að skoða þær allar.