Heimasíða Erlings

 

 

Erlingur Brynjólfsson

Starf: Framhaldsskólakennari við Fjölbrautaskóla Suðurlands, Selfossi. Menntun: Sagnfræðingur. Bíll: Toyota Touring 4WD...Fráskilinn síðan 1989. Er ekki í sambúð og er sjálfbjarga með flest það sem þarf í húshaldi, hvort sem það er að strauja skyrtur, stytta buxur eða sauma gardínur. Þrátt fyrir þetta er ég ekki andvígur konum í lífi mínu, ég bara þjáist af því sjónarmiði að konur séu ekki ambáttir og hef frá örófi alda litið svo á að engin kona eigi að vera í þjónshlutverki á mínu heimili. Hvort sem það er þess vegna að ég bý einn eða út af einhverju öðru veit ég ekki. Hitt veit ég að ég er lítið fyrir að nota vín heima nema þá með mat og stundum við kertaljós, að vín eigi ekki heima í samböndum fólks eða inni á heimilum, eða yfir börnum,og að það sé ekki fjölskylduvænt heldur, svo ef þú ert að leita þér að drykkjufélaga og sukkbróður þá segi ég pass. Ég á tvo syni, Brynjólf 23 ára og Andra 16 ára. Andri býr hjá mér en Brynjólfur er við nám í tölvufræðum í Háksóla Reykjavíkur og býr á Stúdentagörðum með sinni kærustu. Ég bý á Selfossi Ég hef meðal annars gaman af eldamennsku en ekki handa mér einum, ljósmyndun, myndlist, tölvum og öllu yfirleitt sem ekki er ljótt og leiðinlegt.


Andri

 

Brynjólfur
 

 

Hugmyndin með þessari síðu er að gefa sem glæsilegasta en samt sannferðuga mynd af sjálfum mér og því sem ég er að aðhafast. Hér fyrir neðan eru slóðir að áhugamálum mínum og hér er eitthvað meira um mig.

Já og áhugamálin...að vera úti í náttúrunni, að láta fara vel um mig heima, ljósmyndun, tölvur, vefsíðugerð, að vera innan um fólk, allt sem er nýtt og framandi, að fara út að borða í góðum (kvenkyns) félagsskap, elda og borða góðan mat..alls kyns lífsleikni og allt sem eykur gæði lífsins. Ég get haft gaman af djúpum pælingum en er lítið fyrir þrætur. Ég hef lítinn áhuga á vandamálafólki, vasaklútamyndum og drukknu kvenfólki.


Viðbætur 2.5.

Nýjar slóðir:))

 

Viltu skrifa í gestabók? Gamla gestabókin Viltu skoða gestabók?

 

Ljósmyndasýning Uppáhald  English  Slóðir
Fráskildraland      
 Matur  Hugsanir  Fagið Teikningar
Nýjar myndir Flóinn  Fjölskyldan Forsíða