Hér
er sama mynd eftir að einn nemandi minn lagaði hana til.
Hann var að smjaðra fyrir mér til að fá
hærri einkunn í vefsíðugerð. Ég
fellst á allt sem stendur í þessu ómerkilega
smjaðri nema þetta með drykkjufúsa...Þar
hefur mörgum skjátlast. Drykkjufús er ég
aðeins í fjölmenni og þar það
á við. Hér er svo textinn sem fylgdi myndinni:
Þessi síða
er tileinkuð hinum vel-lesna, dularfulla, bardagaglaða, ofsatrúaða,
stórsnjalla, orðheppna, massaða, kurteisa, kyssilega, vel-skeggjaða,
varasama, jákvæða, sterka, skáldlega, smekkvísa, sögufróða, blóðheita,
ofurhugaða, tæknivædda, lærða, drykkjufúsa, heilaga, vel-ættaða,
víðförla, ágæta, skarpskyggna verndara lítilmagnans sem hann Erlingur
Brynjólfsson, sögufræði- og vefsíðugerðar kennari við Fjölbrautaskóla
Suðurlands, er. Fáir þekkja persónu hans hlýtar og enn færri gera
sér grein fyrir þeim svakalegu stórvirkjum sem þessi einstaki
föðurlandsvinur hefur af hendi unnið. Já, hann Erlingur lenti
í mörgum mikilfenglegum ævintýrum áður en hann tók upp á því að
mennta landann. Það er því með gleði í hjarta sem ég tileinka
honum síðuna, megi hann lengi lifa. Meðfylgjandi mynd var tekin
1911 en þá vann Erlingur við trúboð og fornleifauppgröft í svörtustu
afríku.