OOOK

 

 Það eru engin takmörk fyrir hvað fólk vill fá að vita. Einhver spurði hver væri uppáhaldsnemandinn minn og hér er hann.

Gjörið svo vel. Þá vitið þið það.

   

 
 Þetta er Alvin. Hann er.....Alvin. Eða þannig. Hann sjálfur. Náungi sem elskar þennan skrýtna heim og er alltaf tilbúinn að skoða meira af honum. Í hvert skipti sem maður hittir hann er maður forvitinn að heyra hvar hann hafi nú verið.
   

 
 Þessi? Já....Vilborg Una. Hún á sko alveg heima í þessu safni. Hef ekki hugmynd um hvar hún er nema þegar hún man eftir að senda mér jólakort einhvers staðar að úr heiminum. Hún er ekki út úr heiminum á meðan....
   

 
 Þetta er hann Jónas. Hann sendi mér þessa mynd sem hann lét taka eftir að mamma hans hafði gefið honum gula trefilinn. Jónas varð frægur fyrir eitthvað en ég man ekki hvað það er.
   
   Hér með sínum bangsa abgebildet er Jón Aðalsteinn Bergsveinsson og á vel skilinn sinn fasta sess í þessu skrýtnafólkskomsammen. Jón er maðr spakvitr.

 

 Þetta er Guðmundur Torfi Heimisson, teiknaður eftir lýsingu þriggja vitna og mynd í Morgunblaðinu. Hann var sálfræðinemi þá vér síðast til hans spurðum. Maðurinn er eftirlýstur.

Sá eftirlýsti er nú kominn undir manna hendur og búinn að fá karamellurnar sínar.

   Hér eru þeir Óli Davíðs og Steinar Örn á stuttbuxum að dást að byggingarsögu Rómverja hinna fornu. Svona verða menn af því að vera of lengi í sögutímum.