Landið lagslausa.
Þessar myndir eiga það allar sameiginlegt að vera teknar í Flóanum á ýmsum árstíðum. Þetta er sveitin mín eins og ég sé hana og ef þér líkar ekki við það er það allt í lagi mín vegna. Ef þú sérð hana öðruvísi er það bara gott Ef þú nennir ekki að skoða þær er það líka allt í lagi mín vegna, mér líkar ekkert verr við þig fyrir því. En ef þú hefur gaman af þeim þá er það auðvitað hið besta mál. Vandinn er sá að finna fegurð þar sem engin fegurð er og landslag þar sem allt landslag er einhver staðar annars staðar. Fólk og dýr lifir sínum gráa hversdagsleika þar sem hart er um að finna fegurð í þeim anda sem vanalega prýðir póstkort og ferðamannabæklinga.
Þetta hefur verið tómstundagaman hjá mér í mörg ár að fara öðru hverju eina ferð um sveitina mína og grípa á filmu eitthvað sem mér finnst eiga heima þar. Á bak við hverja mynd er einhver persónuleg upplifun, hugarástand eða minning. Ég gerði lítið við þessar myndir lengi vel annað en að setja þær inn í albúm og láta þær bíða þar eftir einhverju sem ég ekki vissi hvað var. Svo gerðist það skyndilega að gamall vinur minn, Pjetur Hafstein Lárusson skáld settist að í Hveragerði. Þá ákvað ég að láta hann hafa nokkrar myndir úr safninu og bauð honum að líta á þær. Ég sagði að hann skyldi bara horfa á þær og sjá hvað gerðist. Ef eitthvað gerðist væri það ágætt og ef ekkert gerðist væri það líka ágætt. Pjetri var heldur ekki settur skilafrestur en samt kemur hann með nokkur ljóð öðru hverju og hér er afraksturinn settur upp.
Engin mynd í þessu safni er stærri en 20K. Ég hef miðað við að hver síða ætti að taka u.þ.b hálfa mínútu í niðurhlaði miðað við 28.8 bita mótald svo tíminn sem það tekur að skoða þær sé ekki langur. Þú ræður..Smelltu hér niðri og síðan áfram þar til þú kemur út á enda, ég veit ekki hvar endirinn á þessu er.
Ég treysti því að þú virðir höfundarrétt bæði að myndum og ljóðum og látir okkur vita ef þú vilt gera eitthvað við þetta annað en að skoða það.
Öll réttindi áskilin. c.1998 Erlingur Brynjólfsson/Pjetur Hafstein Lárusson