Uppskriftir.

Ég hef gaman af eldamennsku. Hérna eru nokkrar af uppáhaldsuppskriftunum mínum ef verða mætti að þær vektu áhuga einhverra til frekari dáða í matargerðarlist. Hér er t.d. ein sem gæti dugað vel ef þið viljið vita hvort einhver elskar ykkur í raun og veru.

Venjuleg uppskrift af grjónagraut. Svo er bætt út í grautinn:

Feiminn hafragrautur

Kjúklingur í salthjúp.

Þessi er í alvöru. Ég er ekki að grínast ég elda þetta sjálfur svona 1-2svar á ári.

Hreinsið og þvoið kjúklinginn. Skrælið engiferrótina og setjið hana inn í kjúklinginn. Setjið salt í botninn á stóru eldföstu móti með loki og kjúklinginn þar ofan í. Grafið kjúklinginn í saltinu svo hvergi sjáist í hann. Hitið ofn í 175 gráður C. og bakið í 90 mínútur. Berið fram með hverju sem ykkur lystir.

Silungur með hnetum og rúsínum.

Grunninn að þessari uppskrift lærði ég af Kristjáni Guðnasyni sem lengi var húsvörður hjá K.Á á Selfossi. Einhverjar viðbætur eru frá mér. Þetta er ein af þessum súpum sem engin uppskrift er til að í raun og veru, aðeins tilfinning fyrir góðri súpu.

Setjið saltkjöt í pott og látið suðuna koma upp.Hnoðið saman rúgmjöli, vatni og salti og búið til kökur úr mjölinu u.þ.b. 7-8 cm í þvermál og 3-4 sm þykkar. Setjið kökurnar með kjötinu og látið sjóða í 1 klst. Berið kökurnar fram heitar með kjötinu. Þær geymast í nokkra daga og eru ágætar með smjöri bæði heitar og kaldar.

Með þessu má bæta ögn af rúgmjöli út í soðið, setja með gulrætur, rófur og kál og þá er komin súpa. Rétt er þó að aðgæta hvort soðið er of salt áður...Þessi súpa borðar sig bókstaflega sjálf og ef hún er vel heppnuð minnir bragðið á feitan kvenmann.

Njótið þessara rétta ef ykkur langar....kannski bæti ég einhverju við seinna.

 

Þessi er frá mágkonu minni.

Takið nætursaltað þorskflak, roðflettið það og steikið á pönnu með lauk og hvítlauk eftir smekk. Stráið karrý yfir og hellið eins og einni dós af kókoshnetumjólk á eftir og hitið.

Þú notar þessa þegar einhver í fjölskyldunni sest á kornfleksið.

Myldu kornfleksið vel. (Gott er að hafa það í pokanum á meðan og kreista hann, en gættu að því að það geta komið göt á hann) Skerðu kjúklinginn niður í hluta - eða keyptu kjúklingahluta - veltu þeim upp úr rjómanum og síðan kornfleksinu. Settu kornfleks í botninn á steikingarpotti og sveppina með, settu kjúklingahlutana með og afganginn af kornfleksinu í kringum bitana og meðfram þeim. Helltu rjómanum á eftir. (Á að giska hálfur lítri pr. hænu er heppilegt eða það sem þér finnst nóg til að kornfleksið drekki vel í sig og verði rakt í gegn.) Saltaðu eftir smekk og bakaðu við 190 gráður í 1 klst. Berðu fram með hverju sem þú vilt. Og ekki fara að setjast á kókópufsið líka, þar get ég ekki bjargað þér.


Ég fékk þessa uppskrift á irkinu hjá stelpu í MH sem heitir Stefa.

Hátíðarfiskur fyrir 4-5
800gr Skötuselur (ég nota nú bara ýsu)
2 saxaðar paprikur
1 sneiddur blaðlaukur
2 saxaðir sellerístönglar (mér finnst þeir vondir og sleppi þeim alltaf)
150 gr. rifinn ostur (ég nota bara eins og mig langar)
2 dl muldar kartöfluflögur (papriku)
2 1/2 dl rjómi
4 msk hveiti
1 dl ananassafi eða hvítvín (ég nota ananassafann ;)
4 msk smjör
2 msk ólífuolía
(ertu ekki örugglega að skrifa þetta niður ??)
1-2 tsk tómatkraftur
1/4 tsk turmeric
1/4 tsk karrí
1 tsk Italian seasoning
1/2 tsk. þriðja kryddið
1 tsk salt
1/2 tsk svartur pipar
1 fiskteningur

húff....þá er hráefnið komið

Nr 1. Láta grænmetið krauma í 2 msk af smjöri þar til það verður meyrt
Nr 2. Bæta 1 msk. af hveiti (ég setti óvart 4 í gær) út í ásamt ananassafa, rjóma, tómatkrafti og örlitlu af vatni ef sósan er þykk
Nr 3. Krydda með turmeric, karrí, þriðja kryddinu, Italian seasoning og fiskteningnum
Nr 4. Láta krauma við vægan hita í nokkrar mínútur og hræra í af og til
Nr 5. Skera fiskinn í sneiðar (stendur 4 cm. ca. en ég geri bara eftir þörfum)
Nr.6 Blanda saman 3 msk af hveiti, 1 tsk. salti og 1/2 tsk pipar (atsjú)
<Grimnir> þetta er að verða flókið en freistandi
<Stefa> aha
<Stefa> alveg eins og kynlífið .. ;)
<Stefa> hehhehe
<Grimnir> right

Nr 7. Hita á pönnu 2 msk af smjöri og 2 msk af ólífuolíu
Nr 8. velta fisknum uppúr hveitinu og steikja hann í 2-3 mín á hvorri hlið
Nr 9. Hella grænmetissósunni í eldfast mót og raða fiskbitunum ofan á
Nr 10. Mylja kartöfluflögurnar ofan á allt saman þannig að þær hylji fiskinn og ostinn þar ofan á eftir vilja
Nr 11. Bregða undir glóð í nokkrar mín... eða þangað til osturinn er bráðinn
Nr 12. Berið á borð fyrir þá sem þér þykir vænt um (...og eru ekki í megrun)

<Grimnir> frábært!
<Stefa> :)

Á þessari slóð eru margar sniðugar uppskriftir að því hvernig á að matreiða grásleppu - og annan fisk.

 

Rannsóknastofnun sjávarútvegsins

Til baka