Safnaðarstarf kirkjunnar

                                                                                    Smelltu hér til að sjá eintak af safnaðartíðindum

Barnaguðsþjónustur eru að jafnaði yfir vetrartímann hálfsmánaðarlega, sunnudagsmorgna frá kl. 10:30. Þar hafa leitt starfið, ásamt sóknarpresti, leiðbeinendur. Fermingabörnin hafa einnig tekið þátt í því starfi. Í sunnudagaskólanum er boðskapur Jesú færður í léttan og auðskilinn búning og prýddur með fallegum og fjörugum söngvum.

Guðsþjónustur eru að jafnaði annan hvern helgan dag yfir vetrarmánuðina og á stórhátíðum. Þær eru vettvangur fyrir fólk í samfélaginu til að hittast, uppbyggjast og efla sín á milli þann göfuga og jákvæða anda, sem gleður hug og hjarta og er ómetanlegt veganesti í öllum mannlegum samskiptum og önnum daglegs lífs. Lagt er upp úr fjölbreytni í tónlist eins og stundin gefur tilefni til.

Kirkjufélagið Geislinn er félag sem er sérstakur velunnari kirkjunnar og hefur verið það í áratugi. Hefur félagið, í gegnum tíðina, gefið kirkjunni marga góða og dýrmæta gripi og hlúð að henni með ýmsum hætti. Þá hefur Geislinn séð um veitingar í safnaðarsal við ýmis tækifæri.

Í kirkjunni hefur verið starfandi barnakór og verið uppistaðan í TTT eða tíu til tólf ára starfi barna og yngri. Hafa börnin komið fram við kirkjulegar athafnir og önnur tilefni.

Öflugur kirkjukór er starfræktur í kirkjunni og eru æfingar að jafnaði einu sinni til tvisvar í viku, oftast á þriðjudögum frá kl. 20 – 22. Enn er nokkur slagsíða á þátttöku karla og er það eitt meginverkefnið að rétta þeirra hlut svo verður sé. Organisti er Daníel Arason.

Kór Eskifjarðarkirkju er einnig hluti af Fjarðakórnum, sem hefur undanfarið haldið tvo tónleika á ári hverju, þ.e. kröftuga gospel-tónleika að vori og síðan magnaða aðventutóneika. Er Fjarðakórinn samstarf þriggja kóra í Fjarðabyggð, ásamt kórum Norðfjarðar- og Reyðarfjarðarkirkna.

Karlakórinn Glaður er einnig hluti af kirkjustarfinu en hann hefur helgað sig söng við útfarir.

Skírnir, giftingar og útfarir eru mikilvægir þættir í kirkjustarfinu og miðar að því að veita fólki fræðslu og leiðsögn og liðsinna eftir því sem unnt er.

Þá er ýmislegt annað sem kirkjan stendur fyrir, s.s. námskeiðum og mótum, starfi með fermingarbörnum og aðhlynningu fólks eftir áföll og í veikindum auk ráðgjafar í ýmsum málum.

Þá rekur kirkjan forvarnarstefnu sem fram kemur á vef Fjarðabyggðar.