Hér er stiklað á stóru á hinu og þessu sem á daga okkar hefur drifið allra síðustu árin...


Og þá er komið árið 2010, hugsa sér þvílíkt og annað eins...

Janúar:

Vinna og hversdagsleiki tekin við
, pestir á undanhaldi og vonandi fer þjóðfélagið að rétta úr kútnum og vit að færast í rískisstjórn vora, æi nei líklega borin von það.En það má alltaf vona það besta. Annars mánuður þorrablóta og inniveru hverskonar.

Árið 2009

Desember:
Eiginlega minn uppáhaldsmánuður þ.e.a.s. ég elska jólin! Byrjaði að skreyta 1. sunnudag í aðventu eins og ég er vön. Höfum haft aðventu kaffi, smákökur og súkkulaði, hittumst hjá Kidda og Gunnu í laufabrauðsgerð, fórum með grjónin að sjá Leitina að jólunum í Þjóðleikhúsinu, fórum í jólamat hjá VÍS í Iðnó, jólafundir og allkonar hittingar, leikhúsferð, verslað og farið á kaffihús. Bara allt eins og á að vera á aðventunni. Nú svo var skötuveisla hér á Þorláksmessu með minni fjölskyldu, aðfangadagur hjá Góu og Helga og ekki sveik matur og vín þar. Jóladagurinn var hangiketsdagur hjá Iðunni og Valla, mikið gaman. Margar sortir af keti, það besta var veturgamalt frá bróður Helga, algjört nammi. Leti dagur á annan í jólum en svo þessa fína skírnarveisla í Fögrubrekkunni í boði Kötu og Nonna, litla Laufey sæta Rós skírð. Síðan lenti frúin í kvefpest eins og fleiri í familíunni og ekki farið í Móa milli jóla og nýjárs eins og búið var að stefna að, en koma tímar... Gamlárskvöld hjá í Álfaheiðinni, frábær matur en heilsan hálf slöpp. Vann nokkra miðvikudagseftirmiðdaga á basarnum í Kattholti, mjög gaman, hefðu mátt vera fleiri kúnnar. En þarna er unnið frábært starf.

Október og nóvember
:Bara þokkalegustu haustmánuðir.Veðrið náttúrlega draumi líkast enda frúnni sama þótt hún sæi aldrei snjó. Flott tvítugsafmælispartý hjá Viktori 22. okt. Svooo stutt síðan að hann var lítill pjakkur. Laxaveisla hér í boði Helga þ.e. hann veiddi en ég kokkaði. Skemmtilegasta partý. Titringur gerir vart við sig hjá KÍ vegna niðurstöðu fjárlaga fyrir árið 2010. Ef verður niðurskurður þá má búast við breytingu á minni vinnu. Horfi svo sem til þess að fara bara að hætta þessu ströggli og gerast heimaliggjandi amma eins og sumir segja! Frænku- og frændahittingur með Öggu Hrönn og Ellu hjá Kidda, mikið gaman það. Væntanlega engin aðventuferð til útlanda þetta árið. Frúin komin á Facebook og þótt fyrr hefði verið að margra mati.

September: Frábært sumar á enda en haustið hefur sinn sjarma. Þetta haust og komandi vetur leggjast ekki vel í marga og mikil óvissa framundan. En Rakel átti afmæli þ. 7. og Kötu og Nonna dæddist dóttir þ. 22. Alger dúlla eins og við var að búast, hefur fengið nafnið Laufey Rós, falleg nafn á fallegri stelpu. Vonandi komum við öll sem best út úr þessum þrengingum og leyfum bara viðskiptahákörlunum að kenna öllum öðrum en sjálfum sér um hvernig komið er. Einhvern tíma, einhvers staðar mun þeim hefnast fyrir gerðir sínar.
Reynum að líta á jákvæðu hliðarnar og brosa í gegnum táraflóðið.

Ágúst: Andri Már 3ja ára 22. ágúst. Fékk tvíhjól með hjálpardekkjum, ekkert smá pontinn sá stutti.
Fiskidagurinn mikli á Dalvík 7.-9.
Við Maggi, Kiddi og Valli héldum norður í ótrúlega upplifun og skemmtilegheit. Leigðum litla íbúð á Karlsbrautinni, rétt hjá þar sem við Kiddi áttum heima sem krakkar. Hittum fullt af ættingjum, borðuðum bestu humarsúpu ever hjá Júlla frænda og Lilju, fengum höfðinglegar móttökur hjá Vali og Marsibil. Það bara hjálpaðist allt að, veðrið, stemmningin, fólkið og ekki síst að afi Kristinn var heiðraður fyrir störf sín fyrir Dalvíkina.

Júlí:
Stórafmæli húsbóndans þ. 25. júlí haldið að heiman. Fórum með Góu og fjölskyldu til Køben. Ekkert smá gaman að fara með Andra, Rakel og Lóu í Dýragarðinn og Tívolí. Lóa litla Bjössadóttir var hjá ömmu Dísu og þær Rakel náðu ótrúlega vel saman. Eftir frábæra daga í borginni við Sundið var haldið til Berlínar með Dísu og Ivan, ógleymanleg ferð í ógleymanlegri borg.
Sumarfrí og gott að skjótast í Móa af og til.Litlu krílunum finnst það ekkert smá gaman og vilja gjarnan með ömmu og afa þangað.

Júní: Ferð í Stykkishólm. Þar var haldið Landsþing KÍ og svo heppilega vildi til að Kiddi bró og fjölskylda var með sumarhús á leigu, þannig að við gátum átt góðar stundir með þeim. Þingið var ágætt, full mikið um setur og ræður, en fínar konur sem gaman var að kynnast. Stykkishólmur er frábærlega fallegur bær og þangað langar okkur aftur í heimsókn.

Apríl: Fínir páskar, fremur stutt Móaferð í norðagarra og kulda. Brunch fyrir mína fjölskyldu á annan í páskum, gaman að fá alla (eða næstum því alla) og eiga skemmtilega stund saman.
Erum búin að sjá nokkrar góðar sýningar í Þjóðleikhúsinu í vetur.

Mars: Góa og Helgi afmæli.

Febrúar: Litli bró orðin fimmtugur og hélt upp á það með stæl. Hátt í 200 manna partý á Amsterdam.Ekki leiðinlegt þar. Gerðum honum svo smá bilt við daginn eftir partíið.


Janúar:Alltaf hálferfiður sá. En haldið var mikið þorrablót hjá Tannstönglum í Hrafnabjörgum hjá Kibbu og Eika.Gat auðvitað ekki annað en létt lundina.

Árið 2008 Setning árins: Helvítis fokking fokk. Segir allt sem segja þarf um það sem gekk yfir þjóðina af mannavöldum á haustmánuðum þ.e.af viðskiptahákörlunum sem létu og láta enn, græðgina stjórna gerðum sínum og þykjast hvergi koma nærri.Stýrðu lánacirkúsum og lifðu og lifa enn á froðuféi.

Í nóvember fórum við með góðum hópi í aðventuferð til Manchester þ.e. með bræðrum mínum báðum og þeirra frúm og tvennum öðrum hjónum, þeim Írisi og Sigga og Halla Reynis og Steinunni. Frábær ferð í alla staði, flestir fóru auðvitað á fótboltaleik, farastjórinn okkar, Valli var búinn að panta á veitingahúsum fyrirfram öll kvöldin, sem voru hvert öðru betra og má ég til að nefna argentínska steikarstaðinn Gaucho, sem er með meiri háttar upplifunum á því sviði.

Edda og Hlíf héldu svaka veislu í tilefni af 100 ára samtals afmæli þeirra mæðgna. G
aman að hitta gömlu vinina svona á einu bretti.
Töluvert brunað um landið okkar og góðir staðir heimsóttir, t.d. Akureyri, Siglufjörður o.fl. En í júli var svo stefnan tekin vestur um haf og farið til Montreal með Kidda bróður mínum og Gunnu. Mjög vel lukkuð ferð í alla staði og borgin kom okkur á óvart, ótrúlega flott (ekki síst búðirnar) og fallegar byggingar og alltaf nóg um að vera. Sumarið bara frábært, gott veður og margt brallað.


24. maí giftu Góa og Helgi sig með pompi og pragt í Dómkirkjunni í Reykjavík. Yndisleg athöfn og Rakel og Andri stóðu sig mjög vel. Rakel hringaberi með meiru. Síðan var haldin veisla í Iðusölum í Lækjargötu, meiri háttar matur og vín, flottar ræður og skemmtiatriði og bara mikið stuð á öllum. Veislan stóð fram undir morgun og verður lengi í minnum höfð.

Amma Pollý dó 24. febrúar í ár. Hún var búin að eiga í veikindastríði síðan 2005, en var komin á gott ról með búsetu í Sunnuhlíð í Kópavogi. En veiktist af kvefi og lést skyndilega og í raun öllum af óvörum. Var jarðsett frá Hjallakirkju 6 mars.
Þá voru tæp 10 ár liðin frá andláti pabba, en hann dó 17. apríl 1998, eftir mjög erfiða baráttu við krabbamein.




Jólavenjur fjölskyldunnar

Hér er byrjað að baka á fyrsta degi aðventu, nema frúin sé víðs fjarri föðurlandinu. Byrjað að skreyta lítilega og borða smákökur. Síðan fara dagarnir fram að jólum í að versla gjafir og annað til jólanna, baka og baka enn meira. Reyndar svo sem farið minnkandi með árunum. Á Þorláksmessukvöld hittist stórfjölskyldan hjá okkur og er borðuð skata, saltfiskur og tilbehør og ekki má vanta snapsinn með. Á aðfangadag er venjan síðustu ár að vera hjá Góu og Helga í humar og rjúpum. Engin smáveisla það. Steinar tengdapabbi er líka með. Mikið fjör og fer vaxandi þegar krílin opna pakkastóðið sem verður tröllauknara með ári hverju. Á jóladag var venja að vera hjá mömmu og pabba, meðan hans naut við, en núna höfum við verið til skiptis hjá Kidda og Valla.

Á gamlárskvöld reynum við systkini og fjölskyldur að hittast og kveðja gamla árið saman eða kannski réttara sagt, að heilsa því nýja.



Árið 2007
Mamma varð níræð 5. nóvember, héldum veislu hjá Kidda og Gunnu og allir voða glaðir og hún naut sín virkilega vel.
Hilla frænka veiktist af heilablæðingu í lok október og lést í kjölfarið. Við Valli og Kiddi fórum norður að fylgja henni til grafar.
Það bættist aðeins í ferðir árið 2007. Um haustið fórum við tvö til London og vorum þar í viku, fórum í leikhús eða á tónleika á hverju kvöldi og skoðuðum borgina á daginn. Ekki má gleyma Fiskideginum mikla og ættarmóti á Dalvík í ágúst þetta ár. Ógleymanleg ferð og staðfastur vilji að endurtaka heimsókn á Fiskidaginn og helst að gera það að árlegum viðburði stórfamilíunnar.
Í október skipti frúin í húsinu um vinnu. Sagði upp á bókasafninu eftir að vera búin að ráða sig hjá Leiðbeiningastöð heimilanna. Meira en hún átti von á svona á gamalsaldri.
Kiddi brói varð sextugur 18.Seinna var haldið heilmikið grillpartý, hele familien og að auki Dísa og Ivan sem voru stödd hér.
Árið hefur verið mikið ferðaár hjá okkur gamla settinu.
Fyrst skal telja góða og skemmtilega páskaferð með Góu, Helga, Rakel og Andra Má til Tenerife.
Bjuggum á á lúxushóteli í þeirra boði og höfðum það ótrúlega gott.
Í júní var farið í vel undirbúna og fræðandi ferð með starfsfélögunum á BóKó til Norrköping í Svíþjóð.
Enduðum í Stokkhólmi og skemmst frá því að segja að borgin heillaði okkur gersamlega. Makar nokkurra okkar komu þangað og meira að segja lögðu Dísa og Ivan á sig ökuferð frá Köben til að hitta okkur. Áttum góðar stundir með þeim.
Í ágúst var farið á niðjamót í tengslum við Fiskidaginn mikla á Dalvík.
Fórum þrjú systkinin með flest okkar fólk og hittum ættingja sem við höfðum ekki séð í háa herrans tíð og aðra sem við höfðum aldrei séð. Eftirminnilegt í alla staði og ekki fráleitt að við endurtökum þennan leik.
Já og svo var farin jólaferð til London í upphafi aðventu.
Fórum í leikhús og á tónleika og bjuggum á hóteli við Trafalgartorg.
Er hægt að hugsa sér nokkuð betra? Vonandi verður árið 2008 spennandi ferðaár líka því nú stefnum við systkinin á Kanada í heimsókn til ættingjanna þar.
Verst að þeir búa allir vestan til í landinu svo þetta verður frekar ströng reisa ef af verður.


Árið 2006

Síðan Kaupmannaferðin góða var farin höfum við gamla
settið brugðið okkur til Prag með vinum okkar Þóru og Jóa á Silfrastöðum.
Frábær ferð í alla staði, borgin heillaði okkur alveg upp úr skónum.
Eigum pottþétt eftir að fara þangað aftur.

Andri Már fæddist 21. ágúst, flottur lítill kall og mikill afastrákur.
Sumarið var fínt með mörgum góðum Móaferðum, golfi, grilli og öllum pakkanum.
Og frúin átti stórafmæli í apríl, nefnum samt enga tölu! Veisla í skugga veikinda mömmu en Góa og Helgi buðu í fína veislu og daginn eftir fórum við á Ray Davis tónleika með vinum í Háskólabíó.


Árið 2005
Við mæðgurnar skelltum okkur í aðventu upplifun þetta árið. Gistum hjá Dísu og Ivan í góðu yfirlæti, eins og venjulega á þeim bænum. Fórum í Tívoli, einum 3svar sinnum og gátum varla fengið nóg af jólastemmningunni þar. Eitthvað var kíkt á Strikið og versluðum okkur m.a. sinn hvorn selskinnsjakkann og sltta af jólagjöfum. Að sjálfsögðu var dreypt á jólaglögg og borðaðar eplaskífur. Mælum með jólaviðauka til DK.
Þegar heim kom ar ekkert annað að gera en að bretta upp rmar og tæma Hrauntunguna og flytja með bú og kött í Þverholtið.
Höfum kunnað vel við okkur hér frá fyrstu stundu, fínr nágrannar og allt á rólegu nótunum. Algjörlega frábært að búa svona í göngufæri við miðbæinn, Miklatún og menninguna á þessum stöðum!

GARDA
Keyptum okkur íbúð í 105 Reykjavík án þess að vera búin að selja húsið okkar í Hrauntungunni.Eitthvað sem maður ætti ekki að gera, við tók nokkuð mikið stress en skelltum okkur samt í ferð með matarklúbbnum til Gardavatns á Ítalíu í ágúst, sem heppnaðist með eindæmum vel. Þarna er náttúrufegurð einstök, fólkið elskulegt, matur og vín af bestu sort. Þetta var skipulögð ferð með fararstjóra á vegum Heimsferða. Og var fararstjórinn, Einar Garibaldi í einu orði sagt frábær. Þekkti þarna hverja þúfu, hefðir og siði innfæddra, enda búsettur á svæðinu í ein 19 ár. Farið var til Flórens og Verona, auk þess að ferðast um vatnið og í kringum það flesta dagana, sem við dvöldum þarna. Ógleymanleg okkur öllum var upplifunin í Arenunni á AIDU. Eitthvað sem við munum seint gleyma.


Vorferð til Amsterdam

Nú er fyrri utanlandsferð ársins af staðin. Heimsóttum sem sagt Holland og vorum aðallega í Amsterdam, en skruppum þaðan í dagsferð til Keukenhov þ.e. Hveragerði þeirra Hollendinga. Eiginlega toppurinn á ferðinni, sem var annars vel heppnuð. Vinnufélagi Magga, Rafn, var í borginni á sama tíma ásamt móður sinni Elínborgu og áttum við góðar stundir með þeim. Það var mikið labbað, skoðað og eitthvað verslað. Gengið um Rauða hverfið, að sjálfsögðu og kíkt inná Grashopper og upplifað hvernig hispurslaus hasssala fer fram.
Næst er stefnan tekin á Gardavatn á Ítalíu í júlí.


Árið 2004
Haustferð til Køben
Í byrjun nóvember 2004 var stefnan tekin á Kaupmannahöfn. Árshátíð VÍS var haldin þar og tókst með eindæmum vel.Var hún á Hotel Admiral, þar sem var gist líka. Auk vinnufélaga voru Edda og Sturla með í för. Nutum við ferðarinnar út í ystu æsar, borðuðum á góðum veitingarstöðum, fórum í Konunglega leikhúsið og ekki má gleyma Konunglega bóksafninu, Svarta demantinum. Aðventustemmningin, þessi eina sanna var að sjálfsögðu hafin í borginni og það er algjör upplifun og forskot á jólin að heimsækja Dani á þessum árstíma. Svo var „browsað“ í búðum og margt fleira. Að ógleymdri frábærri matarveislu hjá vinum okkar Maju og Steen.


Rakel litla Helgadóttir fæddis 7. september, algjört yndi ömmu og afa og bara allra.


Ferðasaga

Frá 18. til 25. maí 2004 tókum við hjónin okkur upp og héldum í ferð til Englands. Leiðin lá til Stansted-flugvallar norðan við London og þar leigðum við okkur bíl af tegundinni Rover. Gistum í bænum Stansted fyrstu nóttina. Morgunin eftir keyrðum í blíðskaparveðri til Oxford, en okkur hafði lengi langað til að skoða bæinn þann. Ekki urðum við fyrir vonbrigðum með borgina því skemmst er frá að segja að við kolféllum fyrir henni. Fengum þar inni hjá írskri hippakonu sem hafði fallið fyrir Oxford 30 árum á undan okkur. Þegar við höfðum labbað víða um, borðað góðan mat, farið í leikhús og upplifað andrúmsloftið héldum við suður á bóginn og gerðum stans í bæ sem heitir Petersfield og þar gistum við upp á lofti í krá, sem upphaflega var byggð árið 1706. Þá lá leiðin Brighton, þaðan til Hastings og fengum okkur svo gistingu í Hythe sem er fallegur strandbær í Kent.Hótelið var við sjávarsíðuna og í góðu skyggni sjást strendur Frakklands í fjarskanum. Næst stefndum við á Dover og römbuðum þar fram og til baka yfir kríthvítum klettunum sem einkenna svæðið. Þarna ganga ferjur yfir Ermasundið til Frakklands og undir sjónum liggja göngin sömu leið. Mælum eindregið með heimsókn til Dover. Nú var haldið í norðurátt aftur og ákvörðunarstaðurinn: Canterbury.Gistum þar í 2 nætur og skoðuðum borgina, sem ekki er mjög stór. Þar er stærsta dómkirkja Breta og er elsti hluti hennar frá 13. öld. Þar sátum við messu á sunnudagsmorgni, sem var mikil upplifun. Í borginni eru miklar og ágætlega varðveittar minjar frá víkingatímum. Kantaraborgarsögur þekkjar allir eða hafa í þ.m. heyrt á þær minnst. Af þeirri dvöl lokinni héldum við austanvert við London aftur í átt að Stansted, en fórum þar hjá garði og norður til Cambridge. Gistum þar eina nótt. Röltum um borgina og fórum í skipalagða skoðunarferð eins og á flestum hinna staðanna. Falleg borg og háskólabyggingarnar margar hverjar hrein listaverk. Allan tímann lék veðrið við okkur og vorum við sammála um að ferðin hefði lukkast með eindæmum vel í alla staði. Þvílíkur munur að geta loks valið um ódýrar ferðir frá Íslandi og upplifað önnur lönd og víkkað sjóndeildarhringinn.


Ferðir innanlands sumarið 2004
Í júni var farið með Eddu og Sturlu norður í Skagafjörð.Nánar tiltekið á Silfrastaði og þar verið í góðu yfirlæti hjá Þóru og Jóa. Á heimleið var keyrt út Skagafjörð og tiplað um í Glerhallarvík. Næsta ferð var í Þjórsárdalinn og þar um kring með Dísu og Ivan, vinum okkar frá Danmörku. Nú í ágúst var svo stefnan tekin á Vestfirði, fyrst í Tungudal við Ísafjörð (Skutulsfjörð) og dvalið þar við gott atlæti hjá Hönnu og Birgi í Laufási. Fórum suður um firði heim og komum víða við t.d.á Þingeyri, og Hrafnseyri.Sorglegt er að sjá doðann í atvinnulífinu sem alls staðar blasir við á þessum slóðum. Merki þess að búið er að taka kvóta og selja skip úr þessum byggðalögum fara ekki fram hjá þeim sem þarna fara um.