Góð ráð geta gagnast vel.
Þessi eru fengin af eigin reynslu og annarra

og eiga við um fólk, heimilishald og dýr eða svo sem hvað sem er...

Hugum að þeim sem standa okkur nærri og verum til staðar fyrir hvert annað. Leitum ekki hamingjunnar langt yfir skammt, hún er oftast nær okkur en við höldum. When life hands you a lemon... always ask for a sugar!
Dýrin okkar stór og smá þurfa sína umönnun. Gleymum aldrei að þvi fylgir ábyrgð og skuldbinding að taka dýr á heimilið. Kostar líka vinnu og fyrirhöfn en það fáum við margfalt til baka, því fátt er eins gefandi og að hugsa vel um dýrið sitt.
Oft er óþarfi að kaupa dýr hreinsiefni til heimilisnota. Þau geta sem best leynst í eldhússkápunum okkar. T.d. edik, sítróna, matarsódi og uppþvottalögur. Sítrónusafi er oft kallaður bleikiefni náttúrunnar og er góður á bletti og til þrifa á baðherberginu. Husum til þeirra sem búa fjarri okkur t.d. illa stödd börn í öðrum löndum. Ég mæli með að liðsinna ABC-Barnahjálpinni, þau sem að henni standa vinna ótrúlegt starf, sem gefur fátækum börnum von um betra líf.
Reyndar er úr nógu að velja ef við viljum leggja okkar af mörkum t.d. Börn í Tógo
SOS barnaþorpin

Styðjum íslenskan iðnað og framleiðslu. Það er bæði gjaldeyrissparandi og atvinnuskapandi. Ég mæli eindregið með hreinsiefnunum frá Undra, t.d. penslasápunni. Við Iðunn mágkona mín tókum prufur með hana á ýmiskonar óhreinindi, bæði í eldhúsi og á baði. Og sjá, allt á bak á burt og án nokkurrar fyrirhafnar!

Munum eftir smáfuglunum þegar kalt er. Gott ráð er að safna eplahýði eða bara skera niður epli og láta út í garð eða á svalirnar. Sömuleiðis er ég alltaf svag fyrir krummunum og læt oft út matarafganga handa þeim. Get lofað ykkur því að sá matur er fljótur að hverfa. Þegar við kaupum olívuolíu til heimilisins, er tilvalið að hella lögg yfir í lítið glas og hafa á baðinu. Setja svo nokkra dropa í baðvatnið, nú eða bera á okkur eftir sturtuna. Olían er frábær á þurra húð t.d. í andliti, varast samt að bera hana nálægt augunum, en við það getur augnsvæðið þrútnað upp séstaklega á meðan við sofum.

Dýr, t.d. hundar og kettir endurgjalda ást og umhyggju sviklaust og sýna eigendum sínum ómælda tryggð.
Kennum börnum að bera virðingu fyrir dýrum.


Ég mæli óhikað með kattamatnum sem frá Ifex í Sandgerði. Kisan mín er bæði matvönd og viðkvæm í maga en þolir þennan mat vel og er raunar sólgin í hann.

Gott ráð til að nánast hvaða blettum sem er úr fatnaði: Bleyta aðeins upp í blettinum, bera vel af uppþvottalegi (ólitaður bestur) á svæðið, setja flíkina í plastpoka, loka honum vel og láta bíða í nokkra klst. Bleyta þá upp í blettinum með volgu vatni, nudda og skola og síðan þvo flíkina á venjulegan hátt. Og sjá, bletturn er horfin! Sem kattavinur hef ég stundum eignast hina og þessa „kostgangara“ sem sannarlega kunna að meta það þegar skilin er eftir kattamatur, t.d. þurrmatur sem kostar nú ekki stórfé, úti í garði. Þetta eru yfirleitt kisur sem engin á eða skiptir sér af. Þannig getur maður gert tilveru þessara dýra ögn bærilegri og víst er að þeir eiga oft harða ævi.

Það er gustukaverk að láta vita af villtum köttum og köttum sem virðast vera á vergangi eða farið er illa með á einhvern hátt. Villikettir eru t.d. oft veikir eða særðir og þeirra bíður ekkert nema meiri þjáningar. Auk þess fjölga þeir sér hratt og til verða enn fleiri kisur sem eiga bágt.
Gæludýraeftirlit
Ef upp koma mál sem varða meðferð gæludýra skal hafa samband við eftirfarandi:

Umhverfisstofnun. Karl Karlsson dýralæknir
sími 591-2000 -
bréfsími 591-2010 - tölvupóstfang: karlk@ust.is

Ef vond lykt er úr ísskápnum er gott ráð að setja skál með ediksblöndu og láta standa í honum yfir nótt. Kemur að sjálfsögðu ekki í staðinn fyrir að þrífa ísskápinn reglulega!

Höfum hugfast:
„Þegar allar dyr lokast, opnast gluggi einhvers staðar“.
  Dönsk borðbæn:
Nogle har mad og kan ikke spise. Andre kan spise og har ingen mad. Jeg takker dig Gud og jeg er så glad, før jeg kan spise og jeg har mad.
    Og aðeins meira frá Dönum:
„Ingen kan hjælpe alle, men all kan hjælpe nogen“.