Ég
er fædd á Dalvík, en hef búið á
höfuðborgarsvæðinu frá 6 ára aldri.
Lengst af í Kópavogi. Með einu fráviki þó
þ.e. við fjölskyldan bjuggum á Akureyri í
ein 8 ár á árunum ´78 -´86.
Höfum auk þess búið í Reykjavík,
Hafnarfirði og Kópavogi. Sem sagt öllum aðalbæjum
landsins!
Síðasti flutningur átti sér stað í
des. 2005, en þá minnkuðum við gömlu brýnin
við okkur og fluttum frá Kópavogi til Reykjavíkur.
Því fylgdi vissulega smá tregi eftir 11 ára
búsetu í bernskubænum við Voginn. En okkur
líst vel á að gerast því sem næst
miðbæjarrottur! Kunnum einkar vel við okkur og með
eindæmum þægilegt að vera í göngufæri
við miðborgina.
Foreldrar
mínir eru Pollý Sæmundsdóttir og Guðjón
M. Kristinsson, málarameistari, þau eru bæði
látin.
Ég á tvo yngri bræður þá Kristinn,
hans kona er Guðrún Sveinsdóttir.Þau eiga
þau tvö börn, Þóru Katrínu og
Tómas Kára. Og „litli“ bróðir
minn heitir Valgarður Þórir. Konan hans heitir Iðunn
Magnúsdóttir og synir þeirra eru Andrés
Helgi, Guðjón Heiðar og Viktor Orri.
|
|
Efri mynd: Mamma níræð í nóv. 2007
Neðri mynd: Við systkinin með henni, Valli t.v. og Kiddi t.h.
|
Maðurinn
minn heitir Magnús Steinarsson, verkefnisstjóri hjá
Vátryggingarfélagi Íslands. Við eigum eina
uppkomna dóttur, Eygló Ósk. Hún er viðskiptafræðingur
og stundar masternám í HR. Hún býr í
Kópavogi ásamt manni sínum Helga Þór
Arasyni, forstöðumanni hjá Landsbanka Íslands.
Þau eiga tvö börn, Rakel og Andra Má.
|
Magnús hér að ofan og Góa og Helgi fyrir neðan |
|
|
Störf
Byrjaði að vinna á Bókasafni Kópavogs
daginn sem safnið flutti í nýtt húsnæði
að Hamraborg 6a, þ.e.í maí árið
2002. Safnahúsið er glæsileg bygging og gaman að
vera þar með frá byrjun. Það starf leiddi
mig í bókasafns- upplýsingatækninám,
sem var afskaplega skemmtilegt. Það er eitthvað við bækur sem hefur alltaf heillað...
Áður hafði ég lengst af unnið bankastörf,
eða rúm 20 ár. Auk þess að hafa komið
við á lögfræðistofu og skrifstofu verkalýðsfélags.
Vann líka um 3 ár hjá Bókasafni Hafnarfjarðar.
Venti enn mínu kvæði í kross árið
2007 og sótti um starf við Leiðbeiningastöð
heimilanna á Kvennaheimilinu að Hallveigarstöðum.
Byrjaði þar 1. des. 2007 og gef leiðbeiningar og ráð
við öllu mögulegu er varðar heimilishald, heimilisstörf
og heimilistæki. Sé um heimasíðu stöðvarinnar
og skrifa greinar í Húsfreyjuna auk margs annars.Leiðbeiningarstöðin
hefur verið rekin af Kvenfélagasambandi
Íslands síðan 1963. Sem sagt einkar fjölbreytt
og skemmtilegt starf.
Það er aldrei of seint að breyta til, eina sem þarf
er áhugi og einhver skammtur af áræði!
Nám
Eftir
Landspróf byrjaði ég að vinna í Samvinnubankanum
og fór síðan í Kvennaskólann á
Blönduósi. Hann var heimavistarskóli og það að búa á heimavist er að mínu mati, ásamt náminu, mjög góður undirbúningur undir lífið. Og enn sækir maður í viskubrunninn þaðan.
Tók svo ýmis námskeið í Bankamannaskólanum
meðan hann var og hét.
Hef sótt í gegnum árin hin og þessi námskeið
í t.d. tungumálum og myndlist. Stundaði nám
í Tölvuskóla Reykjavíkur í einn
vetur, auk margs konar námskeiða sem tengdust vinnu minni
í Landsbanka Íslands.
Tók mig svo til og fór í nám í
Ferðamálaskólanum í Kópavogi og
útskrifaðist þaðan árið 2000, af
Hótel og gestamóttökubraut. Var í
senn fróðlegt og mjög skemmtilegt nám.
Lauk 2ja ára námi í bókasafns-
og upplýsingatækni í desember 2004. Fékk
fagbréf í greininni vorið 2006. Þar var
lögð áhersla á tölvuvinnu hverskonar,
vefsíðugerð, myndvinnslu, fjölmiðlafræði,
greinaskrif, upplýsingaleit og upplýsingalæsi.
Mín reynsla: Aldrei of seint að bæta við sig
þekkingu og raunar algjör nauðsyn, ætli maður
ekki að sitja eftir í okkar tæknivædda nútíma
þjóðfélagi. |
Aftur
á forsíðu
|