|
Föndrið mitt sem ég hef verið að selja. Þetta er brot af föndrinu mínu sem ég hef verið að selja. Enginn hlutur er eins og þetta er aðeins sýnishorn af því hvernig það getur verið. Er með mismunandi myndir , t.d af englum, Jesú, Maríu Mey. börnum og fl. Bænirnar eru eftir Finnboga Rúnar. Ef smellt er á myndirnar þá stækka þær. |
|
|
Mynd í ramma með bæn. Til að hengja upp. Verð 2500 kr. |
|
Mynd á tré með bæn og fyrir kerti. Bæði hægt að hengja upp eða standa á borði. Verð 2000 kr |
|
|
|
Mynd á stein með bæn. Með eða án fyrir kerti. Verð 1000 kr |
|
Steinn með bæn á, engill og fyrir kerti á tréplatta. Verð 1500 kr |
Hægt er að fá upplýsingar og /eða |
Bænir eftir Finnboga Rúnar.
| Vertu með mér góður Guð Lýstu í lífi mínu Ljóssins englar verndi það Og glæði öllum stundum |
Megi ljósið lýsa í heimi
hér Lýsa bæði mér og þér Gefa báðum frið og trú Og færa okkur kærleikann |
Lýsi ljós á veginn minn Verndi og blessi heiminn minn Börnin mín og heimilið Verndir þú og leiðbeinir |
Hafðu gát á öllum hlutum Hafðu ferskar hugsanir Berðu ljós og kærleiksgeisla Inn með þér á hverjum stað. |
|
|
|
Hvernig sem veröldin
veldur Upp og niður út á hlið Vertu ávalt ljósinnsvera Kærleiks rík og gefandi. |
Kærleiks rík er minning
þín Færir gleði og ljúfa mynd Megi ljós og kærleikur Leiða þig á þinni leið. |
Hvar sem liggja fótspor
þín. Megi ljósið lýsa þér. Og gefa að gæfan fylgi þér. Verndi þig og leiðbeini. |
Með ljós í hjarta fæðist þú Með ljós í hjarta lifir þú Megi ljósið ávalt lísa þér Vernda þig og umvefja |
| Í kærleika ég þakka þér Allar stundir sem gafstu mér Og bið að megi góður Guð Vernda þig og umvefja |
Þó gangir þú um þröngan
veg Og lífið virðist snúin þraut Mundu að ljóssins fagra sveit Þig leiðir og verndar alla stund |
Sem ljós þú komst Og lýstir mér Með kærleika ég þakka þér Og bið að ljósið verndi þig |
Hvar sem liggja sporin mín Út og inn um þennan heim Láttu lísa ljósið þitt Svo rati aftur heim til þín |
|