Öfund.
Allt of oft erum við að öfundast út í aðra það sem þeir eru að
gera í staðinn fyrir að samgleðjast þeim. Með því erum við að senda þeim
neikvæða hugsun. Ef til dæmis nágranninn kaupir sér bíl þá erum við gjörn á að
segja “ Heldurðu að hann Siggi nágranni hafi ekki verið að kaupa sér jeppa upp á
3 miljónir, það vantar ekki peningana þar. “ Í staðinn fyrir að gleðjast með
honum og segja “ Frábært hjá honum Sigga nágrana, hann var að kaupa sér jeppa
uppá 3 miljónir.” Fyrir utan að senda honum neikvæða hugsun þá erum við líka að
koma neikvæðni inn hjá okkur vegna þess að við höldum alltaf oft að aðrir hafa
það betra en við vegna þess að það getur leift sér þetta eða hitt en ekki við.
Málið er það að hamingjan kemur ekki með peningum eða veraldlegum hlutum. Fólk
sem á allt og getur leift sér allt líður oft ekki vel. Það er jafnvel
óhamingjusamt að mörgu öðru leiti. Það sést ekki á því hvernig fólki líður með
hlutum sem það getur leift sér og oft er það að leita af hamingjunni með því að
leifa sér þetta eða hitt.