Þessi síða er til minningar um

bræður mína, mág, mákonu og ömmu.

Til baka

Jóhann Kristinn Berthelsen lést 1972

Minning þín ég ætið ber
Í huga mínum og hjarta mér
Ljósið þitt það hjá mér er
Og aldrei burtu mér það fer

Rannveig Berthelsen
 

Hallfríður Maggý Júlíusdóttir lést 1977

Þín gleði og hlátur ég alltaf minnist
Í huga mínum þú aldrei gleymist
Kærleika, hlýju og ást þú gafst mér
Og lýsir mér veginn hvert sem ég fer.

Rannveig Berthelsen

 

Pétur Ágúst Berthelsen lést 1983

Þú ert ávallt hjá mér,hvert sem ég fer
Ég finn fyrir þér, þar sem ég er.
Ég hugsa til þín með bros í hjarta,
Og minnist stundirnar okkar bjarta.

Rannveig Berthelsen
 

Sigurjón Torfason lést 2001

Margar áttum við stundirnar saman
Þú kenndir mér margt og ætið var gaman
Ég kveð þig með sorg og söknuð í hjarta
En veit að þú ert í ljósinu bjarta.
Rannveig Berthelsen
 

Rannveig Þorsteinsdóttir  lést ?

Hvar sem ég er og hvert sem ég fer
ljósið þitt bjarta ég ávallt ber.
Á öllum stundum hugsa ég til þín
Í huga og hjarta kemurðu til mín

Rannveig Berthelsen