Aftur á forsíðu

 

 

 

Að vefrænni kennslumiðstöð á háskólastigi standa allir háskólar landsins - átta að tölu. Þeir eru Háskóli Íslands, Háskólinn á Akureyri, Háskólinn í Reykjavík
Kennaraháskóli Íslands, Landbúnaðarháskólinn á Hvanneyri,
Listaháskóli Íslands, Samvinnuháskólinn á Bifröst, Tækniháskóli Íslands og Tónlistarskóli Reykjavíkur sem er að hluta til á háskólastigi.

Meginmarkmið vefrænnar kennslumiðstöðvar er að veita háskólakennurum, háskólanemendum og starfsfólki hinna ýmsu deilda/skora háskólanna faglega aðstoð við að sinna sem best kennslu, námi og starfi.

Mjög mikil áhersla verður lögð á endurmenntun kennara á sviði tölvu- og upplýsingatækni. Mun sú endurmenntun sem verður með fjarnámssniði fara fram í samráði við endurmenntunar-, símenntunarstofnanir og kennslumiðstöðvar háskólanna.

Ennfremur er hlutverk vefrænnar kennslumiðstöðvar að miðla sem mestum fróðleik um tölvu- og upplýsingatækni í formi leiðbeininga sem munu standa öllum til boða sem heimsækja vefinn.

Unnið verður að því að koma upp myndarlegu flokkuðu vefslóðasafni um gagnlegt og áhugavert efni sem tengist hinum ýmsu deildum háskólanna.

Unnt verður að leita upplýsinga um háskólanám í öllum háskólum landsins á hvaða stigi sem er.

Öllu efni sem fram kemur á þessum sameiginlega vef háskólanna verður safnað í flokkaðan gagnagrunn sem síðan verður tengdur við væntanlegan menntavef á vegum menntamálaráðuneytisins. Ennfremur mun leitarvél þessa vefjar tengjast fjölmögum gagnagrunnum víðsvegar um heiminn.

 

Forsíða | Námsframboð | Framhaldsnám | Símenntun | Upplýsingatækni | Menntavefur

© Þórunn Óskarsdóttir