|
|
Í áliti nefndar um símenntun: Símenntun - afl á nýrri öld sem unnið var fyrir menntamálaráðuneytið í maí 1998 kemur eftirfarandi fram: „Á undanförnum árum hefur hugtakið símenntun [lifelong learning] orðið stöðugt fyrirferðarmeira í umræðum um menntamál. Í þessari skýrslu vísar hugtakið símenntun til menntunar sem æviverks. Einstaklingur aflar sér þekkingar og færni á yngri árum og sækir nám innan skólakerfisins í grunn-, framhalds og háskóla. Hann getur gert þetta í einni samfellu eða með hléum, stundað vinnu, farið í nám á ný eða sótt nám samhliða starfi. Stór þáttur í símenntun er hvers konar endurmenntun í styttra eða lengra námi, margs konar viðbótarmenntun og tómstundanám. Símenntun felur þannig í sér nýtt viðhorf til menntunar, þar sem einstaklingar miða ekki lengur við að ljúka námi í eitt skipti fyrir öll heldur gera ráð fyrir því að menntun sé ferli sem varir allt lífið - frá vöggu til grafar. Símenntun vísar öðru fremur til þessa nýja veruleika og breytir þannig fyrri skilningi okkar á mikilvægi menntunar og felur í sér nýjar leiðir til stöðugrar endurnýjunar fyrri þekkingar og öflun nýrrar. Þessari nýju sýn í menntun var lýst svo af alþjóðlegri nefnd UNESCO um menntun á 21. öldinni": „Í þessari framtíðarsýn er ekki rúm fyrir hefðbundin svör við menntunarkröfum, þ.e. svör sem lúta fyrst og fremst að magni og þekkingarsöfnun. Það nægir ekki að búa hvert barn snemma á ævinni út með þekkingarforða sem það getur síðan nærst á upp frá því. Gera verður hvern og einn færan um að nýta tækifæri til símenntunar, bæði til að styrkja þekkingu sína, færni og viðhorf til að aðlaga sig að breytilegum og flóknum heimi þar sem allt er öðru háð." [UNESCO, 1996:1]. Á öðrum stað í þessari fróðlegu skýrslu stendur: „Nýting upplýsingatækni - Með tilkomu upplýsingatækni opnast ný tækifæri í símenntun. Aðgengi að upplýsingum batnar, boðskipti verða auðveldari og leiðir í sjálfsnámi og fjarnámi verða fleiri."
Á vefrænni kennslumiðstöð á háskólastigi verður mögulegt að nálgast upplýsingar á einum stað um það sem háskólarnir hafa upp á að bjóða á sviði símenntunar. Ennfremur kemur kennslumiðstöðin til með að bjóða alls konar námskeið í fjarnámi í samráði við endurmenntunarstofnanir, símenntunarstofnanir og kennslumiðstöðvar háskólanna og munu upplýsingar um þau koma fram á þessari síðu. Í millitíðinni er vísað á þessar stofnanir hér fyrir neðan: Endurmenntunarstofnun Háskóla Íslands Símenntunarstofnun Kennaraháskóla Íslands
Forsíða | Um vefinn | Námsframboð | Framhaldsnám | Upplýsingatækni | Menntavefur |