|
Í lokalið vefleiðangursins gefst tækifæri til að draga saman fengna reynslu af vefleiðangrinum; leggja áherslu á það sem áunnist hefur í vinnuferlinu; útvíkka og heimfæra það nám sem fram fór; eða gera samantekt á öllu saman. Þetta er ekki mjög mikilvægur þáttur nema að því leyti að hann er eins konar lokapunktur og lesandinn fær á tilfinninguna að vefleiðangrinum sé lokið. Til dæmis biður Kathy Schrock nemendur sína í vefleiðangrinum The 1960's Museum að hugsa um þær vefsíður sem þeir hafa heimsótt og greina frá göllum sem komið hafi fram á þessum síðum. Hún biður nemendur sína líka að ímynda sér viðbrögð við þeirra eigin verkum þegar þau birtast á Veraldarvefnum. |
![]()
Heimildir:
The WebQuest PageDesember 1999 |
Til baka