|
http://www.awesomelibrary.org/ Styrktaraðili þessa vefjar er The Evaluation and Development Institute (EDI)Awesome Library er almenningsbókasafn og vísar á 14,000 vefsíður sem hafa verið vandlega forskoðaðar. Þar á meðal eru þeir fimm kennsluvefir sem hafa notið mestrar viðurkenningar fram að þessu. Vefurinn er mjög aðgengilegur - flokkaður í 24 flokka eftir efni og innan hvers flokks er hægt að finna ótrúlegustu hluti - jafnvel leiðbeiningar um dans skref fyrir skef! Á hverri síðu er leitarvél þar sem hægt er slá inn eitt eða tvö lykilorð og leita eftir þeim. Allar síðurnar eru með vegvísa í margar áttir og er mjög auðvelt að rata eftir þeim. Hér getur maður dvalið dögum og vikum saman án þess að tæma efnið og er það kannski eini gallinn við þennan vef - ef galla skyldi kalla - efnið er yfirþyrmandi mikið! |
|
http://ctap.k12.ca.us/index.html Þessi vefur er rekinn af ofangreindri stofnun sem fjarmögnuð er af menntamálayfirvöldum Kaliforníu þ.á.m. California Department of Education.Þessi vefur er mjög vel uppbyggður gagnabanki fyrir kennara. Á honum er hægt að fá alls konar hjálp bæði tæknilega og kennslufræðilega. Við nánari kynni sýnist mér hann þó höfða mest til bandarískra kennara. |
|
http://www.globalschoolhouse.com/ The Lightspan Partnership sér um rekstur The Global Schoolhouse. Sá félagsskapur byggir á aðeins einni hugmynd: Að leita leiða til að hjálpa börnum - öllum börnum - til að ná sem bestum árangri.Mjög vandaður þjónustuvefur um allt milli himins og jarðar sem snýr að námi og kennslu. Þar með talið mjög ítarlegar leiðbeiningar um það hvernig best er að standa að því að taka tölvu- og upplýsingatækni í þjónustu sína í kennslustofunni. Vefurinn er mjög skipulega settur upp og leiðir mann áfram á þeirri braut sem maður velur sér í upphafi og alveg til enda. Allar síður eru með vegvísi til baka eða áfram og er hægt að eyða þarna dögum og vikum saman án þess að vera búinn að skanna allan þann fróðleik sem þarna býðst á öllum mögulegum sviðum. |
|
http://school.discovery.com/schrockguide/ Mjög yfirgripsmikill þjónustuvefur fyrir fræðsluyfirvöld, kennara og foreldra. Minnir á Global Schoolhouse vefinn sem minnst er á hér fyrir ofan. Þar er að finna yfir 1600 flokkuð atriði með skýringum. Vefurinn er skipulega uppsettur með vegvísum aftur á bak og áfram. |
|
http://www.csun.edu/~vceed009/ Mjög spennandi vefur rekinn af prófessorunum Dr. Vicki F. Sharp og Dr. Richard M. Sharp við California State University, Northridge sem hafa safnað saman gagnlegum vefsíðum fyrir kennara. Þær eru flokkaðar í níu flokka eftir efni og er þar að finna mjög fjölbreytt efni, s.s. um skipulag verkefna, kennsluefni, lifandi (on-line) efni, heimsóknir á söfn og heimsóknir til landa um allan heim. |
|
http://edweb.sdsu.edu/webquest/webquest.html Vefurinn er rekinn af Education Service Center í Texas sem aðstoðar skólayfirvöld við að bæta árangur nemenda og hæfni. Ríki, fylki og skólasjóðir bera kostnaðinn af því starfi. |
9. febrúar 2000