Saga Flateyjar á Skjálfandaflóa í máli og myndum.
Heimsókn ráðuneytismanna Landbúnaðarráðuneytisins til Flateyjar
Í Flateyjarkirkju, kirkjan var skoðuð og farið yfir sögu hennar.
Frá vinstri talið:
Sigurður Þráinsson ráðuneytismaður,
Guðmundur A. Hólmgeirsson, Grund í Flatey, formaður hagsmunafélags húseigenda í Flatey,
Örlygur Hnefill, Miðgarðar Flatey, stjórnarmaður í hagsmunafélagi húseigenda í Flatey,
Níels Árni Lund ráðuneytismaður.
Stoppað var við vitann til skrafs og ráðagerðar í blíðunni (sem er staðviðri í Flatey eins og allir vita...:).
Frá vinstri talið:
Brynja Pálína stendur fyrir framan föður sinn Sigurgeir Skúlason landfræðing,
við hliðina á honum stendur sonur hans Sigurður Skúli.
Við hlið Sigurðar stendur móðir hans Kristín Silvía Valdimarsdóttir.
Þá kemur örlítið fyrir aftan þau sveitastjórnarmaður í Þingeyjarsveit, Þórunn Jónsdóttir, Sólvangi Fnjóskadal,
við hlið hennar er Guðrún K. Jóhannsdóttir, Garðshorni Flatey, stjórnarmaður í byggingar, hafnar og menningarráði Flateyinga.
Þá kemur formaður Flateyingafélagsins Guðmundur A. Hólgeirsson,
fyrir aftan hann er Kristín Huld Sigurðardóttir frá Forleifavernd ríkisins.
Við hlið Kristínar standa hjónakornin frú Margrét Magnúsdóttir og Sigurður Þráinsson ráðuneytismaður.
Fyrir framan þau eru krjúpandi frú Kristjana Benediktsdóttir og Níels Árni Lund ráðuneytismaður.
Stoppað var stutta stund við kirjuna og fór húsfrúin í Grund, Helga Nína (sú í gula stakknum), stuttlega
yfir sögu Flateyjarkirkju og uppbyggingu hennar. Viðstaddir nutu blíðunnar á meðan.