Smekkur hringlaga mandarin petit t.d. og heklunál númer 3,5 eða Tuva úr Europris og heklunál nr. 4 fitja upp 52 loftlykkjur +1 1.umf hekla fastapinna byrja í 2. lykkju= 52 fastapinnar 2.umf 3 fastapinnar auka út 1, endurtaka út umferðina, ca 70 fastapinnar 3. og 4. umf: fastapinna (sama fjölda) út umferðina. 5. umf. 3 fastapinnar auka út 1, endurtaka út umferðina, ca 90 fastapinnar 6. og 7. umf. fastapinnar (sama fjölda) úr umferðina. 8. umf. 4 fastapinnar, auka út 1 endurtekið út umferðina, ca 114 fastapinnar 9. 10 og 11. umf: sami fjöldi og í 8. umferð 12. umferð: 4 fastapinnar auka út 1, endutakið út umferðin, ca 140 fastapinnar 13, 14 og 15. umf. sami og í 12. umferð. Gengið frá endum, heklaðir fastapinnar niður með annari hliðinni, tungur (fjóra stuðla í sömu lykkju 1 lykkja á milli fastapinna og næsta tunga) meðfram neðri kantinum og fastapinnar upp hliðina og að lokum heklaðar 6 loftlykkjur til að búa til hnappagat. Gengið frá endum og smekkurinn er tilbúinn.