Heim
Prjóna uppskriftir
Prjóna leiðbeiningar
Hekl
Garn
Gamlar uppskriftir
Tenglar

Prjónakennslu vefur Arndísar

þarna eru orðalistar fyrir norðurlandamálin yfir á íslensku
Prjónasaumur
Franskur hnútur og eða fræ hnútur
Hvernig hlálmhúfa er saumuð saman
Perluprjón: Fyrsta umferð: 1 slétt 1 brugðin 1 slétt 1 brugðin.....
önnur umferð: 1 brugðin 1 slétt 1 brugðin..........
þriðja umferð: 1 slétt 1 brugðin 1 slétt....
svo má líka hafa 2 s - 2 b og 2 umferðir
Að byrja að prjóna í hring:
Settu lykjurnar fram á báða enda prjónsins, passa að allt snúi rétt á prjóninum, haltu prjóninum sem bandið er á í hægri og byrjaðu að prjóna lykkjuna sem þú fitjaðir fyrst upp, fyrstu lykkjuna á prjóninum í vinstri, passa að halda vel við bandið svo ekki gapi.

"snúnar slétt saman" = taktu lykkjurnar og snúðu þeim við svo þær verði eins og brugðnar lykkjur en prjónaðu þær sléttar.

"snúnar slétt saman" = Stingið prjóninum ofaní 2 lykjur og prjónið þær saman

"auka í": = takið bandið á milli lykkjanna fyrir neðan, snúið upp á það og prjónað sem lykkju.
fer með vinstri prjóninn aftur í fremstu lykkjuna á hægri prjóninum og tek lykkjuna upp þar.

Kaðlaprjón: Setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón fyrir aftan, 2 sléttar, prjóna lykkjurnar á kaðlaprjóninum slétt"
þarft að vera með einn auka prjón og setur 2 lykkjur á hann (óprjónaðar) og hefur prjóninn fyrir aftan, eða framan það sem þú ert að prjóna, prjónar svo 2 lykkjur, og svo prjónarðu lykkjurnar á aukaprjóninum.
KLUKKUPRJÓN:
1. prjónn(ranga): 1 slétt (= kantlykkja), sláið bandi upp á prjóninn, takið eina lykkju óprjónaða fram af eins og brugðna lykkju, * 1 slétt, sláið bandi upp á prjóninn, takið eina lykkju óprjónaða fram af eins og brugðna lykkju *. Endurtakið frá *-*. 1 slétt (kantlykkja).
2. Prjónn(rétta): 1 slétt (kantlykkja), prjónið bandið og óprjónuðu lykkjuna slétt saman*. Sláið bandið upp á prjóninn, takið eina lykkju óprjónaða fram af eins og brugðna, prjónið bandið og óprjónuðu lykkjuna slétt saman *. Endurtakið frá *-*. 1 slétt(= kantlykkja).
3. prjónn (ranga): 1 slétt(kantlykkja), sláið bandi upp á prjóninn og takið eina lykkju óprjónaða fram af eins og brugðna. * Prjónið bandið og óprjónuðu lykkjuna slétt saman, sláið bandi upp á prjóninn og takið eina lykkju óprjónaða eins og brugðna *. Endurtakið frá *-*. 1 slétt (kantlykkja).

takið úr til hægri
Ein slétt taka 1 óprjónaða, 1 slétt steipið óprjónuð yfir

takið út til vinstri,
prjónar 2 slétt saman 1 slétt

"slá upp á prjón": Þú leggur bara bandið yfir prjóninn svo það myndist ný lykkja og heldur svo áfram. Þetta myndar svo gat í næstu umferð þegar þú prjónar í þessa lykkju.
Ensk íslenskar prjónaþýðingar http://storkurinn.is/files/bcfafafiae/prjontydingar.pdf
Þvo ull bara í bala með volgu vatni og smá hárnæringu og leyfi því aðeins að liggja verður ofur-mjúkir

Volgt vatn, í ca 20 mín og ef garnið lætur lit þá setur þú smá borðedik út í.

Útskýringar á úrtöku á berustikkjapeysum
Prjóna með öðru garni reikna réttan lykjufjölda. first þarf að gera prjónafestu prufu, mæla hvað þarf margar lykjur til að fá 10 sm, ef það eiga að vera 130 lykjur og prjónafestan sem er gefin upp er 31 l = 10 sm, og þín prjónafesta er 25 l = 10 sm þá reiknast þetta svona 130 / 31 * 25 = 105 lykjur sem þarf að fytja upp, passa að reikna alla hluta prjónelsisins, úrtökur jaft sem útaukningar.