Combo ehf. er nýtt og ferskt fyrirtæki
sem sérhæfir sig í vönduðu markaðsefni
fyrir smærri fyrirtæki.
Þó að fyrirtæki séu smá
er samt sem áður nauðsynlegt að láta
vita af sér í samkeppninni til að rekstrargrundvöllur
sé fyrir hendi.
Vefurinn er sífellt meira notaður af fyrirtækjum
sem vilja koma sér á framfæri og almenningur
notar netið til að afla sér upplýsinga
um vörur og þjónustu. Það má
því með sanni segja að netið sé
vaxandi miðill sem mörg fyrirtæki ættu
að nýta sér mun betur. Flest stærri
fyrirtækin í landinu eru farin að nýta
sér netið mjög vel, en þau minni eru
oft á tíðum langt á eftir. Að
koma sér á framfæri á netinu þarf
ekki alltaf að vera dýrt, en í sumum tilfellum
má segja að vefsíða sé með
ódýrari auglýsingum sem fást.
Þær lifa lengi og koma neytendum oft beint að
efninu. Hvernig þá ? Leitarvélar eru mikið
notaðar af fólki sem vantar ákveðna
vöru eða þjónustu. Séu fyrirtæki
ekki með vefsíðu eru engar líkur á
því að þeirra nafn komi upp við
slíka leit. Jafnvel lítil vel unnin vefsíða
getur tryggt það að nafn fyrirtækisins
komi ávallt upp við slíka leit.
Látt þú ekki þitt eftir liggja
á upplýsingaöldinni og komdu þér
á framfæri. |