Canal du Midi sigling
2008 - ferðasaga
Fimmtudagur 5. júní
Við Inga Rósa vöknuðum snemma í flug. Brottför með Flugleiðum klukkan 7:40 til Heathrow. Þaðan tókum við rútu á Gatwick flugvöllinn en við áttum bókað flug með EasyJet klukkan 18:40. Þeirri vél seinkaði síðan um 20 mínútur. Áttum sem betur fer innhlaup í Priority Lounge þar sem var ró og friður. Komum því til Toulouse um klukkan 9 að staðartíma og tókum leigubíl á hótelið. Var þá orðið all áliðið svo ekki var meira á dagskrá þann daginn.
Föstudagur 6. júní
Toulouse.
Sváfum nokkuð frameftir en náðum þó morgunmat. Röltum síðan áleiðis niður í miðbæ Toulouse og fundum þar forláta hringekju sem freistaði. Inga Rósa fékk sér sæti og ég klifraði upp á efri hæðina. Fór nú hringekjan að snúast og notaði ég tækifærið og tók myndir í allar áttir og klifraði upp og niður. Birtist þá gömul kerlingarhnyðra og jós skömmum á báða bóga og var ekki gott að skilja hvers vegna. Það skýrðist þó og átti víst að borga 2 evrur til að fá að fara hringferðir. Gerðum upp eftirá og allir skildu sæmilega sáttir. Skoðuðum kirkjur og búðir í Toulouse og áttum ágætan dag. Borðuðum á Maison du Cassulet ágætis kvöldmat. Leituðum uppi enskan pöbb og fengum okkur dökkan bjór sem heitir Darktagnang. Afgreiðsludaman kom og hélt að við værum kannski svíar en hún var sænsk.
Laugardagur 7. júní
Vöknuðum aftur nógu snemma fyrir morgunmat og röltum síðan upp á lestarstöð. Eftir nokkra bið eftir afgreiðslu fengum við miða og afgreiðslumaðurinn benti okkur á að ef við flýttum okkur þá færi lest til Montpellier eftir fimm mínútur og hún stoppaði í Castelnaudary. Náðum henni. Vorum komin þangað um klukkan eitt og gengum frá bátapappírum en gátum ekki fengið bátinn fyrr en eftir klukkan 15:00. Báturinn heitir Magnifique og er 14,5 metrar á lengd og er með fjórum tveggja manna káetum, setustofu, eldhúsi og sóldekki. Tókum létta æfingu með því að sigla upp kanalinn smáspöl. Lögðum síðan aftur í Castelnaudary enda vantaði ennþá slatta af áhöfninni. Um kvöldið komu síðan Markús, Berglind, Sigurður Pétur og Rósa Elísabet. Var þá fullskipað í áhöfnina.
Sunnudagur 8. júní
Siglt Castelnaudary – Bram 16 km
Lögðum upp um klukkan 10 og siglingin hefst á því að fara um fjórfalda slúsu. Mjög margar slúsur eru á þessum fyrsta legg eða samtals 12 og er heildarlækkunin 46 metrar. Það var því nóg að gera á spottunum. Allt gekk eftir áætlun ágætisveður dumbungur en sæmilega hlýtt. Skurðurinn hlykkjast um landið eftir hæðarlínum og tré á báða bóga. Þeim var plantað til að verja jarðveginn í bökkunum en jafnframt skyggja þau nokkuð á útsýnið. Náðum til Bram um klukkan 18 og lögðum við landfestar. Hjóluðum inn í bæinn um 2 kílómetra leið til þess eins að komast að því að allir veitingastaðir voru lokaðir. Við bátalægið var hinsvegar veitingahús sem opnaði klukkan 19:30 og fengum við þar ágætan viðurgjörning.
Mánudagur 9. júní
Siglt Bram til Carcassonne. 24 km
Lögðum upp klukkan níu og miðaði ágætlega enda færri slúsur á þessum legg. Þær eru einungis fimm og heildarlækkun 17 metrar. Klukkan eitt vorum við komin til Carcassonne og var þá orðið heiðríkt og steikjandi hiti. Röltum upp í Le Cité en svo nefnist sá hluti bæjarins sem byggður var á þriðju og fjórðu öld eftir Krist en endurbyggður á miðöldum og kom meðal annars við sögu við útrýmingu Catharanna. Væri ærið dagsverk að skoða kastalann og fórum við því nokkuð hratt yfir sögu. Leituðum talsvert að boðlegum matsölustað til að snæða kvöldverð og enduðum á hóteli við bátalægið. Er skemmst frá að segja að allt sem gat klikkað hjá þeim gerð það. Fyrst biðum við óratíma eftir matseðlum og síðan ennþá lengur eftir víni. Fyrsti rétturinn kom ca klukkutíma eftir pöntun og síðan tíndust tveir inn með korters millibili en þó vantaði vínið fyrir Ingu Rósu. Var nú farið að þykkna nokkuð í viðstöddum og tjáðum við þjóninum skoðun okkar á þjónustunni. Nokkru síðar kom yfirþjónn afsakandi með síðustu réttina og reyndust Cassoulet – in skítköld. Ekki getum við því mælt með Hótel Terminus í Carcassonne.
Þriðjudagur 10. júní
Siglt Carcassonne til Trebes. 12 km
Byrjuðum daginn á að fara á markaðinn í miðbæ Carcassonne. Keyptum ávexti og fleira. Lögðum upp klukkan 13:30 það er eftir hádegishlé slúsuvarðanna. Sigldum ti Trebes um 6 slúsur og lækkuðum okkur um tæpa 21 metra. Landslag nokkuð að breytast. Vínrækt að taka við af kornökrum og hæðir og fjöll í fjarska. Við Inga Rósa tókum okkur hjólatúr ásamt Rósu og Sigurði Pétri meðfram skurðinum meðan Markús sigldi. Komum til Trebes um klukkan 16:30. Þar sem lensidæla í sturtuklefa í fremri káetum virtist stífluð fengum við viðgerðarmann frá Crown Blue line til að kíkja á málið. Hann brasaði heilmikið undir gólfinu framan við sturtuna og brosti sínu blíðasta þegar hann fór. Röltum um gamla bæinn og fórum síðan út að borða um kvöldið í Moulin du Trebes. Fyrsta flokks staður með mjög góðum mat og góðri þjónustu. Sannarlega góð umskipti frá mánudagskvöldinu.
Miðvikudagur 11. Júní
Siglt Trebes til La Redorte. 22 km
Seinkaði nokkuð af stað þar sem nágranni okkar í næsta bát hafði fengið hjartaáfall og til að auðvelda sjúkraliðunum starfið bundum við bátana saman. Þurftum svo að bíða við fyrstu slúsu sem er þreföld. Eftir að við vorum komin gegnum slúsuna fór Berglind í sturtu í nýviðgerðum klefanum. Skipti engum togum að vatn fossaði um öll gólf framan við sturtuklefann. Þegar að var gáð hafði viðgerðarmaðurinn góði semsagt brotið stútinn af síuhúsinu, ákveðið að ekki væri hægt að gera meira og falið slönguna frá niðurfallinu í síuna. Eftir nokkuð bras tókst að tengja framhjá síunni og var því sturtan komin í fínt lag aftur. Sigldum um fimm slúsur og lækkuðum okkur um 36 metra. Heildarlækkun frá Castelnaudary nú orðin 120 metrar. Veður var ljómandi gott, sólskin og blíða. Við Inga Rósa tókum góðan hjólatúr meðfram skurðinum í frábæru veðri. Erum í miðjum vínræktarhéruðum og er því útsýni á báða bóga yfir vínakra. Hægt að kaupa lókal vín í slúsunum. Ætluðum að fara í búð í Marseillette en komumst að því að þar var enga verslun að hafa. Sigldum því áfram til La Redorte og fundum þar ágætis veitingastað með hefðbundnum matseðli. Búðum var hinsvegar búið að loka. Skammt er til Homps en þar skilum við bátum. Við náum því greinilega að sigla nokkuð austur fyrir Homps og skoða það sem þar er að sjá. Í heildina alveg prýðilegur dagur.
Fimmtudagur 12. júní
Siglt Frá La Redorte til Le Somail. 26 km
Enn er siglt um vínræktarhéruð. Nú er landið flatara þannig að slúsum fækkar. Fimm allt í allt og lækkun um 19.61 metra. Skiptumst á að hjóla og sigla. Nokkuð hvasst en sól og hiti hæfilegur. Óneitanlega tekur báturinn nokkuð á sig vind og þarf því að hafa það í huga við stýrið. Stoppuðum ekki víða nema í hádegishléi slúsuvarðanna. Stoppuðum líka í Homps til að kaupa kost, einkum drykkjarföng en þau höfðu klárast í hitanum. Héldum svo áfram til Le Somail sem er smábær sem helst er þekktur fyrir bókabúð sem bókasafnarar víða að heimsækja sem fyrirheitna landið. Borðuðum á fyrirtaks veitingastað og fengum m.a. ljómandi góðan eftirrétt sem samanstóð af ískúlum með rommi yfir. Ekki slæmt það. Stefnum til baka til Homps á morgun en þar skilum við bátum á laugardag. Vegalengd frá Castelnaudary nú orðin 100 km og lækkun 103,6 metrar. Útsýni mjög flott og þorpin ljómandi fín.
Föstudagur 13. Júní
Siglt frá Le Somail til Homps. 21 km.
Lögðum upp fyrir níu til að hafa nógan tíma. Nú snérist dæmið við og við förum upp slúsurnar og hækkuðum okkur núna um 15,99 metra. Tókum hádegishlé í Argens-Minervois. Þar var ljómandi falleg kirkja og gamall kastali sem reyndar er að hruni kominn. Einnig var þar að finna leikvöll fyrir Sigurð Pétur og Rósu. Nokkuð hvasst en sólskin með köflum. Enduðum í Homps um klukkan þrjú og lögðum bátnum. Samtals er búið að sigla 121 kílómetra, fara um 37 slúsur þar af eina fjórfalda, þrjár þrefaldar, tíu tvöfaldar og tuttugu og þrjár einfaldar, eða 46 þrep. Eftir að hafa slakað vel á í sólinni fundum við okkur prýðisgóðan matsölustað og snæddum þennan líka dýrindis málsverð. Morgundagurinn fer í að skila bátnum og koma sér aftur til Toulouse.
Laugardagur 14. júní
Vöknuðum rúmlega sjö og þá beið leigubíll eftir Skrúðásfjölskyldunni en þau áttu bókað í lest klukkan átta frá þorpi skammt frá Homps. Við Inga Rósa tókum að okkur að skila bátnum og ganga frá málum. Berglind hringdi eftir korter og var þá komið í ljós að franskir lestarstjórar voru í verkfalli, allavega einhverjir þeirra. Því voru allar áætlanir um lestarferðir í uppnámi. Þau tóku leigubíl til Carcassonne og fengu lestar far þaðan til Toulouse. Þegar við höfðum kvatt bátinn með trega og haft uppi heitstrengingar um næstu siglingu, fórum við eins að. Fengum leigubíl og brunuðum til Carcassonne og nánast beint uppí lest til Toulouse. Þegar þangað var komið röltum við sem leið lá niður á hótel Crown Plaza. Á leið okkar var allt undirlagt af skrautlegu liði og farartækjum. Var þar á ferðinni bókamaraþon blandað saman við gaypride sýndist okkur. Skoðuðum okkur um í nágrenninu m.a. kirkju jakobínannna sem er nokkuð sérstök. Fengum starfsmann hótelsins í lið með okkur og pöntuðum bílaleigubíl fyrir morgundaginn. Hugmyndin að skutlast til Andorra. Um kvöldið fórum við á stað sem heitir Oh Toulouse en þar er í boði dinner og kabarett. Ekki mjög stór staður og gestahópurinn samanstóð af fjórum afmælisveislum, fjórum gæsapartíum, einu steggjapartíi og okkur. Ein gæsin fékk „surprise“ atriði í gjöf frá vinkonunum, karlstrippari lék fyrir hana listir sínar. Eftir desert hófst síðan prógrammið sem samanstóð af söng og dansatriðum og töframanni / búktalara á milli. Ljómandi skemmtilegt en kannski ekki alveg prófessiónal.
Sunnudagur 15. júní
Vöknuðum tímanlega í morgunmat og tókum skutlu út á flugvöll til að nálgast bílaleigubílinn. Ókum síðan í átt að Pýrennea fjöllunum nánar tiltekið með stefnu á Andorra. Landslag í fjöllunum ólýsanlegt og greinilega mjög margt að skoða. Hellar með 13000 ára gömlum mannvistarleifum, endalausir kastalar frá krossferðatímanum og margt fleira. Héldum nokkuð stíft áfram og komum að landamærum Andorra í nærri 2000 metra hæð yfir sjávarmáli. Fórum um fjallaskarð og lentum hæst í rúmlega 2400 metra. Í smáþorpunum Andorra megin virðist allt snúast um skíðamenn. Hótel eftir hótel og skíðalyftur í öllum brekkum. Augnablikið þegar útsýn birtist yfir Andorra La Vella er eitthvað sem ekki gleymist. Borgin stendur nánast í gljúfri, svo brattar eru fjallshlíðar á báða bóga og undirlendi lítið sem ekkert. Samt er þarna hellingur af húsum stórum og smáum þó aðallega stórum. Ókum eftir nRoute leiðsögn beint í miðbæinn og fundum bílastæðahús til að geyma bílinn. Röltum síðan um miðborgina og fengum okkur að borða. Mikið úrval af búðum með skartgripi, snyrtivörur og rafmagnsvörur. Snerum til baka og fórum nú göngin undir áðurnefnt fjallaskarð. Ókum sem leið lá beint inn í Toulouse og enn eftir góðri leiðsögn nRoute beint ofaní bílakjallarann á Capitol torginu. Besti vinur aðal á hótelinu heimtaði síðan af okkur bílastæðamiðann og lyklana að bílnum til að geta fært hann á viðeigandi stæði. Gesti r Hotel Crown Plaza leggja sko ekki innan um pöpulinn. Fengum okkur léttan kvöldverð á útiveitingastað við torgið en þar skemmdi þó fyrir að afar mikilvægur ameríkani þurfti að láta alla heyra í hvaða vandræðum fyrirtækið heima var. Skil ekki til hvers hann var að nota símann. Það hlýtur að hafa heyrst í honum langleiðina vestur án þess. Endaði með einn af gestunum sussaði á hann og bar það nokkurn árangur. Fyrir utan málóða ameríkanann hinn besti dagur.
Mánudagur 16. júní – heimferð.
Fengum bílinn heim að dyrum og lögðum upp á flugvöllinn. GPS-inn átti svoldið erfitt með að ná merki í þröngum götum Toulouse. Keyrðum því smá aukahring en komumst svo á sporið og á flugvöllinn vel tímanlega. Flugið til London tók rétt rúmlega einn og hálfan tíma en hinsvegar tók næstum því jafnlangan tíma að fá töskurnar eftir flugið. Tókum lest niður á Viktoria stöðina og jarðlest þaðan niður á Paddington en Heathrow hraðlestin fer þaðan. Áttum nokkurn tíma aflögu og tókum því lestina niður á Picadilly Circus og röltum um nágrennið. Fengum okkur að borða og tókum síðan lest aftur upp á Paddington og þaðan út á Heathrow. Nýttum okkur setustofuna og slökuðum á fyrir flugið. Vélinni seinkaði um rúman hálftíma og lenti svo í bið eftir flugtaki svo heildar seinkun frá London var hátt í klukkutími. Eftir 40 mínútna flug kom upp krítiskt ástand í flugvélinni þegar einn farþegi fékk hjartakast. Sem betur fer voru læknar um borð og tókst þeim að koma sjúklingi í jafnvægi aftur svo ekki þurfti að lenda. Flugið gekk síðan áfallalaust eftir þetta og vorum við komin til Keflavíkur uppúr miðnætti og heim klukkutíma síðar. Lauk þar með afbragðsferð.
|