19.11.10
Rúmt ár liðið frá síðustu færslu.
Það verður að viðurkennast að þetta er til háborinnar skammar. Líklega saknar nú enginn upplýsinga frá mér en ég hafði í huga að safna minningarbrotum hér. En ég man bara ekki eftir að færa þau inn. Svona er lífið. Svo eru líka allir komnir á Facebook - og ég líka (en Maggi er enn andlitslaus). En ég er ekkert viljugri að setja efni þar inn. Engin veruleg tíðindi hafa orðið í fjölskyldunni og lífið gengur sinn vanagang. Mér tókst að ljúka námi í gæðastjórnun. Inga Rósa er búin að ljúka við bókina um Svenna. Markús er líka kominn til CCP. Verð að segja frá þvi að við hjónin fórum í alvöru útilegu í sumar. Hengdum tjaldvagninn aftan í Patrol og komum nánast ekki heim í fimm vikur (gistum heima eina nótt í "forbifarten"). Fórum um vesturland og vestfirði sunnanverða, um norðurland austur á Hérað og í Húsavík til skáladvalar og svo ótalmargt fleira skemmtileg.
14.10.09
Sumarið er lið og ríflega það.
Sumarstörfin voru með nokkuð hefðbundnum hætti þ.e Inga Rósa fór í skálavörslu austur á landi og ég ók þjóðverjum um landið. Þess ber þó að geta að við hjónin náðum góðum sumarleyfirstíma saman og ferðuðumst um Suðurlandið og gistum í nýja tjaldvagninum okkar. Jú jú við þurftum auðvitað að eiga ferðavagn eins og allir en ákváðum þó í ljósi kerppunnar að halda okkur við tuskuhús á hjólum. Það er auðvitað ekki nærri eins merkilegt og fellihýsi svo ekki sé nú talað um hjólhýsi en við erum sæl og glöð með okkar. Haustið kom svo með roki og rigningu og við erum byrjuð í námi aftur (með vinnunni) Inga Rósa í íslenskunni og ég sjálfur í gæðastjórnun. Veðrið hefur sett strik í reikninginn hvað varðar framkvæmdir en við vorum búin að mustra smið í að skipta um þak á Hjallabrekkunni. Ekki hefur viðrað til þess enn.
Allir í fjölskyldunni hressir og kátir. Hélt endilega að ég hefði verið búinn að skrásetja hrakfarasögu nafna míns en svo er greinilega ekki.. Hann hljóp of hratt niður brekku fyrr á árinu og lærbrotnaði. En það er nú allt gróið og gott. Berglind og Markús eru bæði hætt að vinna hjá Hugviti. Berglind fór til CCP en Markús er á leiðinni til Libra. Þórður í mastersnámi í auðlinda og umhverfishagfræði. Sunna og Maggi í Stokkhólmi, Sunna hjá Applicon og Maggi í námi í arkitektúr. Með nánari fréttir af þessu fólki öllu vísast í bloggsíður þeirra - en það eru víst allir nema við Maggi komnir á Facebook þannig að þar er kannski takmarkaðar upplýsingar að hafa. Verð sennilega að fara að gefast upp. Óttast bara að það séu engir vinir eftir handa mér þar sem mér skilst að meirihluti þjóðarinnar sé nú þegar skráður á þetta fyrirbæri.
2.07.09
Vinir falla frá.
Tveir öndvegismenn tengdir okkur eru fallnir frá.
Jón Ísberg fyrrum sýslumaður á Blönduósi lést fyrir skömmu og ætlum við að skjótast á Blönduós á morgun og fylgja honum síðasta spölinn.
Alli afi eða Aðalmundur Magnússon tengdafaðir Sunnu Bjarkar lést í gærkvöldi eftir skamma sjúkrahúsvist.
Við treystum því að höfundur tilverunnar taki vel á móti þessum öðlingum og sendum fjölskyldum þeirra okkar innulegustu samúðarkveðjur.
12.02.09
Frábært blót .
Eins og við mátti búast var gríðarlegt stuð á þorrablótinu. Sæsi mætti í fyrir-fyrirpartí til okkar um klukkan fjögur og við fórum síðan til Ragnars þar sem saman komu 37 manns. Það var ekki leiðinlegt. Mikið hlegið og rifjaðar upp sögur af héraðshöfðingjum. Þetta er að verða ein aðalhátíð ársins. Blótið sjálft var líka mjög skemmtilegt. Jón Kristjáns var aðalræðumaður og brást ekki. Óperudívurnar Stefán og Davíð skemmtu eins og þeim einum er lagið, matur var afbragðsgóður og hljómsveitin Hafrót lék fyrir dansi. Í einu orði sagt - frábært. Jú eitt enn, Inga Rósa er í næstu nefnd.
5.02.09
Hef ekki verið upptekinn við að skemma búsáhöld.
Bara til að fyrirbyggja allan misskilning þá stafar skortur á færslum ekki af því að ég hafi verið niðri á Austurvelli að berja potta og pönnur. Ekki má þó skilja mál mitt svo að ég sé á móti mótmælum. Það er bara ekki nóg að mótmæla. Menn verða að vita hverju er verið að mótmæla og hvað á að koma í staðinn. Framundan er nú Þorrablót átthagafélaganna. Það verður stuð!
9.01.09
Hversdagsleikinn blasir við.
Um fátt er meira rætt og ritað þessa dagana en fjárhagshrunið og ástandið í þjóðfélaginu. Auðvitað hef ég skoðun á því eins og aðrir en hef þó valið að vera ekkert að ræða þetta hér enda er þessi dagbók fyrst og fremst hugsuð til að ég geti síðar rifjað upp hvernig lífið gekk til. Að mestu gengur það sinn vanagang hjá mér og mínum. Þórður er þó að söðla um og koma heim aftur eftir veru í Danmörku. Bæði eru gengismálin erfið og svo stóð námið ekki alveg undir væntingum. Vonandi fær hann inni í HÍ en hann er búinn að sækja þar um í meistaranám í hagfræðinni. Ég er svona rétt að ná að rétta úr mér eftir framkvæmdatörnina á baðinu og byrjaður að spá í hvaða ég get endurbætt næst - en það verður ekki strax. Nú stendur til að skreppa í Víðhlíð um helgina og sópa út dauðum músum og láta líða úr sér í pottinum. Ekki slæmt það.
2.01.09
Gleðilegt nýtt ár.
Þá eru blessuð jólin liðin og áramótin sömuleiðis. Áttum afar notalega daga með tilhlýðilegu ofáti og afslöppun. Að baki er viðburðaríkt ár og undarlegt - einkum síðustu mánuðir þess. Að venju er nú hugmyndin að taka upp betri siði, borða minna, trimma meira, færa oftar í dagbók og þar fram eftir götunum. Reikna þó með að efndir verði í meðallagi.
8.12.08
Loksins lítur þetta út eins og baðherbergi aftur.
En það er líka búið að taka tímana tvo eða nánar tiltekið þrjá mánuði.. Enda skipt um allt sem hægt var að skipta um. Reyndar er enn eftir að skipta um gler í glugganum en það verður ekki gert fyrr en í sumar. Og það vantar ennþá glervegginn sem lokar sturtuna af. Það kemur.

Kreppember 2008
Fjölskyldumynd.
Hvað er betra til að létta lundina en smella inn mynd af fjölskyldunni. Þarna erum við samankomin í Landmannahelli í útilegu sem einkenndist af lemjandi slagveðri, en var samt alveg ljómandi fín.

Nóvember 2008
Hvað er hægt að segja um ástandið á Íslandi??? - Nenni sannast sagna ekki að blanda mér í upphrópanaumræðu um bankahrun.
17.09.08
Þetta er auðvitað alveg skelfilegt baherbergi

og svona voru pípulagnirnar við vaskinn þegar ég var búinn að brjóta

þurfti að færa þær en það kallaði á slaufur

vonandi verður þetta nú samt aftur að snyrtilegu baðherbergi
12.09.08
Bara kominn september og vel það
Tíðarfar með ágætum og brjálað að gera. Búinn að rífa mest allt innan úr baðherberginu í Hjallabrekkunni. Valdi erfiðistu leiðina þ.e. að færa öll hreinlætistæki og ofninn líka. Það þýðir að breyta þarf öllum vatns- og frárennslislögnum. Nú er gott að eiga góða brotvél enda er ég kominn í gegnum veggi og inn í skápa hér og þar. Líst ekki meir en svo á að þetta verði nothæft aftur. Birti myndir síðar.
25.08.08
Loksins
Tekst loksins að stela smátíma til að skrásetja eitthvað í dagbókina. Búin að vera í sumarfríi og ferðast vítt og breitt. Frakklandsferðin var auðvitað frábær. Ferðasagan og tengill á myndir er í áhugamálasíðunni. Svo fórum við í útilegu með öllum börnum, tengdabörnum og barnabörnum og það var nú heldur ekki leiðinlegt. Að venju skildu síðan leiðir með okkur Ingu Rósu, hún fór austur á víkur í skálavörslu en ég tók nokkra daga í rútukeyrslu. Reyndar hittis svo vel á að ég var einmitt í gistingu á Egilsstöðum laugardagskvöldið sem Bræðslutónleikarnir voru á Borgarfirði og komst ég þangað niðureftir með góðra manna hjálp. Mjög skemmtilegir tónleikar. Af fjölskyldunni ber hæst að Maggi er byrjaður í arkitektanámi í Stokkhólmi og þau eru búin að festa sér nýtt húsnæði, Þórður er að fara í mastersnám í Århus og flytur því að heiman nú í lok ágúst.
Tíminn líur hratt
Vorverkum er nú að mestu lokið. Búið að klippa tré og runna og hreinsa beð af miklum móð. Heimilisfólk, annað en dagbókarritari, hefur verið upptekið við próflestur en eru nú laus og heldur Þórður til Jamaika seinna í dag. Við hjónin erum ásamt Skrúðásfjölskyldunni að undirbúa siglingu á Canal Midi í Frakklandi - ekki amalegt það. Báturinn sem við erum búinn að bóka er 14,5 metrar og rúmar fleiri en fara. Var valinn eftir mottóinu "Bigger is better"

22.04.08
Síðasta vika
Gengur ekki alltof vel að halda uppi dampi í dagbókarskrifum. Hef verið önnum kafin við vorverkin í garðinum. Búinn að klippa og höggva á báða bóga. Allt annað að sjá garðinn. Svo erum við að byrja að hreinsa til í blómabeðum þannig að þetta er nú allt að koma. Skrapp í Egilsstaði á mánudag á lokafund í Vöku. Þar er snjór og kuldi og taldi ég mig heppinn að sleppa í flug án mikilla tafa á þriðjudagsmorgni. Aðeins þurfti að afísa vélina en ekki ryðja flugbrautina. Þess þurfti þó seinna um daginn.
22.04.08
Fjallabíll
Gleymdi að geta þess að við höfum keypt okkur nýjan (gamlan) fjallabíl. Í þetta skiptið er það ekki Ford heldur Nissan Patrol frá 1998 á 35" dekkjum og bara alveg ljómandi fínn vagn.

20.04.08
Fín helgi
Sunna Björk kom í heimsókn með Emilíu Snæbjörgu á fimmtudag og ætlar að ver fram á þriðjudag. Sunna var nú reyndar dáldið á flakki að hitta vinina eins og vonlegt var en Emilía hélt okkur selskap á meðan og ekki slæmur selskapur það. Eins og hin barnabörnin okkar er hún auðvitað alveg einstök.
10.04.08
Vaknaður af værum blundi
Eftir hálfs annars árs þögn hef ég ákveðið að hefja dagbókarritun á ný. Svo margt hefur á dagana drifið að það tekur einhverjar færslur að vinna það upp. Fyrst ber þá að geta fjölgunar í fjölskyldunni en Magnúsi og Sunnu fæddist dóttir þann 12. september síðast liðinn. Hún var framanaf nefnd "Lilla Gumman" en var síðan vatni ausin í desember og heitir eftir það Emilía Snæbjörg. Þau búa í Stokkhólmi og hafa fest kaup á húsnæði þar.
17.09.06
Skírn Guðmundar Steins
Mátti til með að smella inn 4 myndum af Guðmundi Steini með afa og ömmu.
12.09.06
Veit bara ekki hvar á að byrja
Svo margt og mikið hefur á dagana drifið á þessu ári og verður það ekki rakið hér í tímaröð. Berglindi og Markúsi fæddist drengur sem hefur nú þegar verið vatni ausinn og heitir hann Guðmundur Steinn. Er það mesti myndarpiltur eins og sést á myndinni hér fyrir neðan.

Sunna, Magnús og Júlía Jökulrós eru nú lögð af stað til Svíþjóðar en þar ætla þau að dvelja um hríð. Sunna verður áfram í sömu vinnunni en Magnús ætlar að bæta við þekkingu sína í tölvufræðum. Við kveðjum þau með söknuði og hótunum um að koma reglulega í heimsókn. Þau ætla þó að koma heim um jólin.
Miklar framkvæmdir hafa staðið yfir í Hjallabrekkunni og er þeim ekki lokið enn. Eitt herbergi var rifið og við það stækkaði stofan talsvert. Skipt var um parkett og hurðir. Reyndar er því verki ekki alveg lokið þegar þetta er skrifað enda freistaðist yfirsmiðurinn til þess að eyða bróðurpartinum af sumarleyfinu við rútuakstur á fjöllum eins og stundum áður. Fáeinar myndir af framkvæmdunum eru komnar undir "myndir" en myndavél fjölskyldunar gaf upp öndina í miðju verki og hefur ekki verið endurnýjuð enn. Úr því verður bætt og þá verður bætt við myndum.
13.02.06
Betra seint en aldrei - Gleðilegt nýtt ár
kæru lesendur
Ég ætla nú ekki einu sinni að reyna að bera í bætiflákann
fyrir sjálfan mig og lyklaborðsletina. Alltaf fullt að gerast.
Datt í hug að smella inn smá videói
af Júlíu Jökulrós.
21.12.05
Það eru bara að koma jól
Einhverrra hluta vegna gengur erfiðlega að halda
úti dagbók og er þó af nógu að taka. 28. október fórum við hjónin
til Kaupmannahafnar ásamt allmörgum Eddubræðrum og konum þeirra.
Tilefnið var heimsókn á afmælisfund hjá dönsku frímúrarastúkunni
Z&F en hún var stofnuð 25. október 1745 og var því orðin 260 ára
gömul. Var það mikil hátíð og gaman að skoða húsakynni reglunnar
í Kaupmannahöfn. Tími gafst til að ráfa um íslendinganýlendur
á Strikinu s.s. Illum og Magasin DuNord og nýttust þær gönguferðir
vel til fjárútláta. Þegar heim kom var vetrarfrí hjá Ingu Rósu
og ákváðum við að eyða því í Víðihlíð. Áttum þar góða daga, þegar
hiti náðist aftur í húsið. Frystiskápurinn hafði nefnilega bilað
og slegið út öllu rafmagni og þar með fór kynding af. Enginn skaði
hlaust þó af og undum við hag okkar ágætlega í heita pottinum.
Toggi Hugleikari hringdi í mig í leit að ljósameistara fyrir Jólaævintýrið
og þar sem ég lá afslappaður í pottinum fannst mér það lítið mál
og sagði já. Urðum þó að stytta dvölina þar sem ég þurfti
að fljúga til Calgary í Kanada föstudaginn 4. nóvember. Var að
fara í vinnuferð, nánar tiltekið að gera úttekt á mælingabíl sem
Dynawinch var að smíða fyrir ÍSOR. Gekk það allt samkvæmt áætlun
og þar sem ég þurfti að dvelja nokkra daga tókst að kíkja aðeins
á túristastaði m.a. aðeins í Klettafjöllin. Þegar heim kom var
komið að skuldadögum gagnvart Hugleik en önnur loforð og þrengsli
í Tjarnarbíói urðu til þess að ég hafði þrjá daga til að græja
lýsinguna og er þá generalprufa meðtalin. Slapp þó fyrir horn og
ganga sýningar ágætlega og er þetta hið skemmtilegasta verk eins
og við er að búast af Hugleik.
24.10.05
Júlía Jökulrós Magnúsdóttir
Um helgina var stórhátíð á heimilinu. Litla dóttir
Sunnu og Magnúsar heitir ekki lengur Pons 2.0 heldur Júlía Jökulrós.
Sr Guðjón Skarphéðinsson annaðist prestverkin en athöfnin fór fram
í Hjallabrekkunni. Var þetta hátíðleg og yndisleg stund í hópi
góðra vina.
11.10.05
Heimsókn til Slóveníu
Við hjónin skelltum okkur til Ljublana í síðustu viku. Reyndar var þetta svona fræðslu og árshátíðarferð á mínum vinnustað. Ferðin tókst í alla staði vel og var fróðleg og skemmtileg. Farið var með okkur í heillanga ferð til norð-austur hluta landsins en þar er svolítil jarðhitavinnsla. Ekki stórtæk á okkar mælikvarða en dugar þó til að hita fáein hús og reka heilmikið sundlaugar "spa". Svo var snætt á sveitakrá á heimleiðinni og dansað við undirspil innfæddra sem kunnu alveg óendanlega mikið af Týrólapolkum. Reglulega skemmtilegt.
Meira síðar.
05.08.05
Barnabarn númer tvö fætt
Sunnu og Magnúsi fæddist dóttir þann 3 september. Allt gekk
eftir bókinni og dóttirin er yndisleg eins og sést
á þessum myndum..
Þau ungu hjónin hafa staðið í stórræðum
við endurbætur á íbúðinni sinni
við Rauðalæk. Við gömlu hjónin erum
auðvitað að springa úr stolti og þakklæti
fyrir slíkt ríkidæmi sem okkur hlotnast í
börnum og barnabörnum.
Við fórum í heilmikla siglingu á Shannon
í sumar en ég hef ekki komist í að setja
inn myndir úr henni fyrr en nú. Ferðasagan er í ritun og verður
sett inn fljótlega (vonandi)
27.6.05
Brúðkaup númer tvö
á árinu.
Berglind og Markús staðfestu hjúskaparheit
sín í Garðakirkju þann 25. Sr Hans Markús
stýrði athöfninni en Guðrún Gunnars og
Berglind Jónasar sungu. Brúðjónin voru
stórglæsileg eins og við var að búast
og smáfólkið Sigurður Pétur og Rósa
Elísabet stóðu sig með ágætum
í hringaburði. Á eftir var síðan boðið
til veislu á heimili hjónanna að Skrúðási
8 en reist hafði verið 40 fermetra tjald í þeim
tilgangi. Er skemmst frá að segja að menn átu
og drukku lengi kvölds og skemmtu sér siðan við
söng og glens fram eftir nóttu. Myndir verða birtar
hér um leið og færi gefst.
7.6.05
Merkur áfangi í lífi
okkar hjóna.
Það eru semsagt heil 30 ár síðan
við gengum upp að altarinu í Dómkirkjunni
og játuðumst hvort öðru. Það verður
nú að segjast eins og er að ég er heldur ánægður
með þessi þrjátíu ár. Við
höfum skilað af okkur fyrirmyndar afkvæmum og bærilegu
dagsverki og erum bara í góðum málum.
18.4.05
Meira af myndum.
Markús tók myndir í brúðkaupi
Sunnu og Magnúsar og nú er hluti þeirra kominn
hér. Annars ber það helst til tíðinda
að við erum búin að ákveða að
fara í frí til Írlands í Júlí.
Berglind og Markús ætla með og Sigurður Pétur
og Rósa Elísabet fá líka að koma
með. Áætlað er að sigla eftir Shannon ánni
á Shannon Star .
18.4.05
Tími til kominn að skrifa.
Og þótt fyrr hefði verið. Eins
og fram kemur í síðustu færslu er þetta
ár brúðkaupa í fjölskyldunni. Sunna
og Maggi gengu í heilagt hjónaband þann 26.
mars síðastliðinn. Athöfnin fór fram
í Búðakirkju á Snæfellsnesi undir
styrkri stjórn sr Guðjóns Skarphéðinssonar.
Veður var með besta móti. Þoka sem lá
yfir sveitinni um morguninn sópaðist í burtu og
sólin skein í heiði þegar gengið var
til kirkju. Nokkrar myndir frá athöfninni er að finna hér. Veislan var síðan
haldin í samkomuhúsinu að Arnarstapa sem hefur
nú reyndar mátt muna sinn fífil fegurri. En
með nokkurri vinnu og tugum metra af acryldúk ásamt
ljósabúnaði af ýmsum toga tókst
að breyta salnum í vel boðlegt veisluhúsnæði.
Þar nutu gestir matar og drykkjar og létu vel af. Haldnar
voru ræður og sungið og trallað frameftir kvöldi.
Loks var stiginn dans eitthvað frameftir nóttu en dagbókarritari
er orðinn heldur lélegur næturgöltrari og
fór því tiltölulega snemma í koju.
Dagurinn var semsagt í heild sinni afskaplega yndislegur
og eftirminnilegur. Brúðhjónin hélud síðan
á mánudeginum í brúðkaupsferð
til Ameríku. Verða þau sjálf að gera
grein fyrir ferðum sínum.
6.1.05
Gleðilegt nýtt ár.
Þá eru jólin og áramótin
um garð gengin með tilhlýðilegu vafstri. Áttum
hálf einkennileg jól þar sem heilsuleysi setti
mark sitt á hátíðarhöldin. Sunna og
Maggi dvöldu hjá okkur á aðfangadag ásamt
bandarískum samstarfsmanni þeirra. Þau voru síðan
einnig hjá okkur á gamlárskvöld enda búin
að selja ofan af sér á Seljaveginum og byrjuð
að tæma íbúðina. Þau eru búin
að kaupa sér íbúð á Rauðalæk
en fá hana ekki afhenta fyrr en í apríl. Berglind
og Markús og þeirra börn hafa verið heilsulaus
líka og féllu jólaballaferðir niður
þetta árið. Gengur betur næst.
Stærstu tíðindin eru auðvitað
að það stefnir í tvö brúðkaup
í fjölskyldunni á árinu. Ég fæ
semsagt að trítla inn kirkjugólf með báðar
dæturnar á árinu. Tímasetningar eru ekki
alveg ljósar enn svo meir um það síðar.
14.12.04
Af ýmsu að taka.
Enn hefur dagbókarritari gleymt sér
í amstri dagsins og ekki skráð til bókar
um nokkurt skeið. Ýmislegt hefur þó á
daga fjölskyldunnar drifið. Kennaraverkfallið leystist
með hótunum. Ólíklegt að sátt
verði um þann samning til langs tíma. Við endurfjármögnuðum
lánin okkar eins og svo margir aðrir. Notuðum tækifærið
og keyptum viðbótar bíl á heimilið
en Toyotan er orðin mjög léleg. Í þetta
sinn keyptum við fimm ára VW Passat langbak. Verður
að segja eins og er að við höfum ekki eignast betri
vagn.
Aðalfjörið var auðvitað fimmtugsafmælishald
frúarinnar. Boðið var í óvissuferð
laugardaginn 27. nóvember og skráðu sig rúmlega
90 manns í ferðina. Við Þórður fengum
tvær rútur hjá Jóhannesi Ellertssyni
og ókum sjálfir. Haldið var suður með
sjó. Stansað í Kálfatjarnarkirkju og þar
fengum við fyrirlestur um kirkjuna. Síðan var haldið
suður í Garð og ekið framhjá æskuheimili
Ingu Rósu að Efri Gerðum en fyrst áð úti
á vita. Gefið brennivín. Síðan haldið
niður á bryggju og gengið þaðan uppí
samkomuhús þar sem gefið var meira í staupinu,
bornar fram veitingar og síðan haldnar ræður,
sungið og dansað til ríflega tvö. Fyrir dansi
lék sama band og í tjaldafmæli mínu fyrir
tveimur árum. Uppistaðan Sæsi Ben og Finnbogi Kjartans.
Þórður spilaði með þeim sem og Bjarni
Þór og ég fékk líka að spila
bæði lögin sem ég kann. Til að gera langa
sögu stutta hepnaðist ferðin hreint frábærlega
og erum við afskaplega þakklát öllu þessu
yndislega fólki sem samfagnaði þessum áfanga
frúarinnar. Á sjálfan afmælisdaginn sóttum
við frúna á límósínu í
vinnuna og gáfum henni kampavín og sendum hana síðan
í bað. Altso tyrknest í nýja fína
spa-inu í Laugardalnum. Um kvöldið snæddum
við á Humarhúsinu og áttum prýðilega
kvöldstund.
11.10.04
Veturinn nálgast.
Fyrstu haustlægðirnar gerðu nokkurn
usla í garðinum okkar. Þrjátíu ára
hlynur lagðist flatur undan rokinu. Mikil eftirsjá að
svo fallegu tré en þó huggun harmi gegn að
hann lagðist útaf aftan við gróðurhúsið
án þess að skemma neitt annað. Og svo má
auðvitað geta þess að hann skyggði orðið
mjög á bæði gróðurhúsið
og jarðarberjaakurinn. Ég stend annars í ströngu
þessa dagana við að endurskipuleggja bílskúrinn
hjá okkur. Talsvert af dóti farið til langtímavistunar
í Sorpu, annað komið upp í hillur en samt
flæðir enn rusl um allt gólf. Þarf líklega
aðra ferð í Sorpu.
Inga Rósa situr heima án vinnu þar sem kennarar
eru í verkfalli sem virðist ekki vera neitt að leysast.
Allt hið skelfilegasta mál og niðurdrepandi fyrir
kennara og nemendur. Ég hef lengi verið þeirrar
skoðunar að menn komi alltaf illa út úr verkföllum.
Það þarf allavega verulegar kjarabætur til
að vinna upp mánaðar tekjutap heimila kennara svo
ekki sé nú talað um hrakninga nemenda sem eru
að missa stóran hluta kennslutíma ársins.
27.8.04
Sumarið brátt á enda.
Nú styttist í haustið þó
tíðarfarið bendi ekki til þess. Eindæma
blíða dag eftir dag. Veðurfræðingar hafa
spáð rigningu alla vikuna en sólin skín
sem aldrei fyrr.
Skal nú gerð grein fyrir sumarfríi.
Byrjaði á að slípa upp trépallinn í
garðinum. Var nokkuð meiri vinna en ég átti
von á. Tók hálfan dag að ná tökum
á fja...... slípivélinni sem ólmaðist
eins og óþæg trunta út um allar trissur.
Var þó vel þess virði því pallurinn
breytti talsvert um svip. Fór eins og oft áður
tvo rútutúra í sumar eða eiginlega einn
og hálfan. Tók fyrst 12 daga túr á Trölla
með Kneissl hóp í samfylgd Slafmobil sem er svona
skúffuhótel á hjólum. Gott veður
og fínn túr. Við hjónin skelltum okkur
síðan í snögga ferð í Laka og
heim um fjallabak syðra með viðkomu í Skjólkvíum.
Horfð sem barn og unglingur til Heklu og velti vöngum hvað
væri á bakvið hana. Nú er ég búinn
að sjá það. Mjög áhugaverð
leið. Tók síðan bíl fyrir Svenna í
Reykjavík og skilaði af mér á Egilsstöðum
sex dögum seinna en þá tók annar bílstjóri
við hópnum. Þar hittumst við hjónin
og fórum í Kverkfjöll og út um Herðubreiðarlindir.
Lentum þar í hitabylgju yfir 20 stiga hiti í
Lindum. "Nýi" Bronkóinn stóð sig prýðilega en hafði þó
nærri valdið mér magasári af bensínleysisáhyggjum
en mælirinn tók upp á því að
sýna tómt þegar hann er ca hálfur. Náttúrulega
höfum við svo skotist í Víðihlíð
til að slaka á í heita pottinum.
En nú er semsagt brauðstritið hafið
aftur. Inga Rósa er byrjuð að temja unglinga og Þórður
er innritaður í Háskólann. Berglind og
Markús enn að byggja og eru búinn að slá
upp undir þann stærsta sólpall sem ég
hef lengi séð. Sunna og Maggi eru að laga til íbúðina
sína og bíða nú eftir leyfi til að
byggja nýjan kvist og breyta þeim sem fyrir er. Fjölskyldan
sem sagt í fínum gír og allir hraustir.
21.6.04
Enn er liðinn langur tími án
skrifta.
Ég veit ekki hvaða afsökun á
að draga fram núna. Ýmislegt hefur þó
á dagana drifið frá páskum. Helst er þess
að geta að Þórður er kominn heim úr
Bjarmalandsförinni um Evrópu sæll og glaður.
Hann fór strax að keyra hjá SBA og hefur lítið
sést heima. Sunna fékk ekki inngöngu í
skólann sem hún sótti í en stefnir samt
enn á framhaldsnám. Berglind og Markús skelltu
sér til London á dögunum og fékk Rósa
Elísabet þá að gista hjá afa og ömmu
í fjóra daga.
Og svo er það heiti potturinn. Það
varð semsagt úr að kaupa heitan pott og setja í
Víðihlíð. Þá þurfti náttúrulega
að smíða pall undir hann og koma honum fyrir. Undirstöður
undir pallinn voru reistar síðustu helgi í maí
og var þá reyndar líka steypt gólf í
bíslagið og ýmislegt fleira dundað. Að
kvöldi 16. júní lögðum við síðan
í hann með kerru hlaðna pallaefni og heitum potti
í ofanálag. Auk stórfjölskyldunnar mættu
Ásta og Haukur og Inga Mæja bættist í
hópinn á laugardegi. Þarf ekki að orðlengja
það að potturinn var kominn á sinn stað
og vígður að kvöldi 17. júní þó
svo eftir væri að ganga frá í kringum hann.
Haldið var áfram með frágang á föstudeginum
og sömuleiðis var bíslagið einangrað og
klætt að innan. Þá var plantað út
70 öspum og heitir þar nú Magnúsarskógur
þar eð Maggi lagði til plönturnar. Þá
var dyttað að girðingu og hliði og svo náttúrulega
étið og drukkið og slakað á í pottinum
á kvöldin. Semsagt fín helgi. Myndir
frá henni hér
Fórum svo löngu leiðina heim þ.e.
upp með Stóru Laxá inn á Línuveg
og þaðan vestur að Gullfossi. Gríðarleg
fjallasýn í glansbjörtu veðri. Lentum inn
á aflagðan hluta leiðarinnar og vorum nærri
lent í hremmingum í mjög stórgrýttu
vaði á Stóru Laxá. Snerum frá og
fundum réttu leiðina. Þyrfti að merkja réttu
leiðina betur eða loka þessari aflögðu því
hætta er á að einhverjir dembi sér í
ána og gætu setið fasti á stórgrýtinu.
15.4.04
Að afloknum páskum.
Börnin okkar hjóna, sem er nú
raunar allt fullorðið fólk, ákváðu
að stórfjölskyldan skyldi njóta samvista
um páskahelgina og leigðu af því tilefni
orlofshús að Stóra Kambi undir Jökli. Þangað
var haldið miðvikudaginn fyrir páska og mættu
flestir. Sigurður Pétur var með móður
sinni á Akureyri og Magnús var að trítla
með frönskum björgunarsveitarmönnum um Skaftafell
og Vatnajökul. Hann slóst svo í hópinn
síðar. Aðstaða er til fyrirmyndar og veðrið
lék við okkur á skírdag og föstudaginn
langa. Farið var á alla helstu hefðbundna ferðamannastaði
og svo komumst við í svolítinn jeppaleik á
snjó.
Svo var auðvitað etið og drukkið
og spilað og spjallað eins og lög gera ráð
fyrir á stundum sem þessum. Rósa Elísabet
var ekkert leið yfir að láta alla snúast í
kring um sig í fjóra daga. Semsagt fyrirtaks páskahelgi
í faðmi fjölskyldunnar.
Þórður er lagður upp í
stóru Evrópureisuna sína og má sjá
fréttir af honum á blogginu hans. Eins og þar kemur fram fer hann að keyra hjá
SBA-Norðurleið þegar hann kemur til baka og er ekki
sorgmæddur yfir því.
29.3.04
Akureyrarferð.
Um helgina var haldinn fyrsti ársfundur ÍSOR
og var ákveðið að halda hann á Akureyri.
Lagt var af stað á föstudagsmorgni kl. 8 og dagbókarritari
sat fremst vinstra meginn í rútunni eins og
stundum áður. Ferðinn gekk vel enda færð
greið. Fundurinn var áhugaverður og prýðilega
sóttur og endaði með ostpinnum og rauðvíni.
Ekki amalegt það. Á laugardeginum var síðan
farið í vettvangsferð um Eyjafjörð með
hóflegri bjórveitu. Um kvöldið var síðan
starfsmannahátíð á Hótel KEA sem
einnig tókst með ágætum. Svolítil
éljamugga og hálka tafði okkur lítillega
á heimleiðinni á sunnudag allir komu þó
aftur og enginn þeirra ...... -
svo vitað
sé.
8.3.04
Heimsókn um helgina.
Við hjónin fengum fína heimsókn
um helgina. Rósa Elísabet var hjá okkur frá
föstudegi fram á sunnudag á meðan foreldrarnir
skruppu á árshátíð í Kaupmannahöfn.
Allt gekk þetta ljómandi vel við fengum að
sofa til átta báða morgna og Rósa undi
sér hið besta. Við fórum í heimsókn
til Ástu systur minnar, síðan í búðir
og gáfum öndunum. Það er ekki mikið mál
að passa svona fyrirmyndarbarn.
3.3.04
Frumsýningu lokið.
Síðastliðinn laugardag frumsýndi
Hugleikur Sirkus og tókst sýning prýðilega.
Örlitlir hnökrar þó en ekkert til vansa.
Áhorfendur skemmtu sér hið besta og allir voru
glaðir og kátir langt fram á nótt. Ég
er nú orðinn of gamall til að halda út lengur
en til svona þrjú en þá var rétt
að lifna almennilega yfir samkvæminu. Næsta sýning
ekki fyrr en á sunnudag 7. mars þar sem Herranótt
er að koma sér fyrir í Tjarnarbíói.
Má reikna með að þurfa að lagfæra
ljósin eitthvað talsvert eftir það.
26.2.04
Svakalélegur bloggari.
Reyndar var nú ekki hugsunin að halda
úti bloggi enda ekkert svona fínt kommenta kerfi í
gangi. Sé í hvaða ógöngum slíkt
getur lent svone eins og hjá Þórði
Inga þar sem fjölskyldan hefur staðið í
ritdeilum um íslenskt mál.
Er frekar
upptekinn núna. Lét til leiðast að lýsa
eina sýningu hjá Hugleik og nú er frumsýning
á laugardag svo að allt er á fullu. Meir um það
síðar.
5.2.04
Nýtt tól frá Macromedia.
Þessi færsla er nú eiginlega bara
til að prófa Contribute2 frá Macromedia. Með
því er hægt að skrifa inn á síður
án þess að þurfa að hafa áhyggjur
af html stöffi. Svosem ekkert nýtt en virðist svínvirka
eins og flest annað frá þessu ágæta
fyrirtæki.
26.1.04
Góð helgi.
Fór með starfsmannafélaginu að
sjá Chicago í Borgarleikhúsinu. Þar sem
þetta var nærri 60 manna hópur var okkur boðið
uppá kynningu á leikhúsinu fyrir sýningu.
Þvílík vonbrigði ! Vorum leidd inn í
sal þar sem leikarar voru í sinni hefðbundnu mimi
mimi momo momo muuuhhh raddæfingum og sungu síðan
eitt lag svona sem test fyrir hljóðmanninn. Gengum síðan
yfir sviðið, um ganga framhjá búningsherbergjum
og fram í anddyri aftur. Tók slétt korter.
Hafði því 45 mínútur til að sötra
úr einu rauðvínsglasi. Nú jæja. Sýningin
var hins vegar mjög flott og hin besta skemmtun. Söngur,
dans og gleði í 3 tíma. Söguþráðurinn
að vísu ósköp klénn en það
skipti auðvitað ekki máli í svona skrautsýningu.
Flott lýsing sem þjónaði vel sínum
tilgangi og átti sér forsendur en alltof oft finnst
mér ljósabreytingar vera gerðar bara til að
gera breytingar eða sýna eitthvert fiff. En þarna
voru sem sagt breytingar rökréttar - fannst mér
að minnsta kosti. Það hlýtur að vera gaman
að geta leikið sér með 7 róbóta
með nánast endalausum möguleikum á snúnings
góbóum og öllum regnbogans litum. Svo ekki sé
nú minnst á þokuvélarnar sem halda þessu
dularfulla mistri á sviðinu sem gerir ljósameistaranum
kleift að teikna mynstur í loftið.
Rósa Elísabet var hjá okkur
á laugardag á meðan foreldrarnir undirbjuggu 30
ára afmælisveislu móðurinnar. Afmælið
var að vísu þann 24. desember síðastliðinn
en það er nú ekki heppilegur tími til partíhalds.
Mér finnst alls ekki vera 30 ár síðan við
skröltum yfir klakabólstrana með Ingu Rósu
niður á fæðingarheimili til að koma Berglindi
í heiminn. En það er nú önnur saga.
Rósa Elísabet er auðvitað mjög hress
og spræk og snýr afa og ömmu í kringum
sig eins og skopparakringlum. En það er sko ekkert leiðinlegt.
18.1.04
Skrambans kvef!
Það er ótrúlegt að maður
skuli þurfa að nota helgina í það að
liggja eins og aumingi undir teppi og snýta sér. Nú
er gott að hafa breiðband með 40 stöðvum. Reyni
að nota tímann til að bæta í dagbókina.
Aðallega er ég að vekja athygli á nýrri
myndasíðu Rósu Elísabetar http://ecommunity.gopro.net/rem/index.html. Svo var ég líka að setja inn gamlan
flash vef frá því ég var að læra
vefsíðugerð.
16.1.04
Nýtt ár gengið í
garð og vel það.
Til að fyrirbyggja allan misskilning þá
er ekki núna fyrst að renna af mér áramótavíman.
Ég hef bara ekki haft nennu til að skrifa í dagbók
neitt um ofát og afslöppun um áramótin.
En allavega sendi ég öllum sem vilja þekkja mig
bestu óskir um gleðilegt ár og þakka þeim
sömu ánægjuleg kynni á liðnum árum
og áratugum - svona er maður nú orðinn gamall.
Ég var að velta því fyrir
mér af hverju alvöru pistlahöfundar og margir bloggarar
eru sífellt með nagg og nöldur út í
allt og alla. Mér finnst einhvernveginn að lífið
sé dásamlegt og við eigum að njóta
þess að fá að lifa í farsæld og
friði hér á okkar ágæta landi. Það
kostar eiginlega ekkert orðið að skreppa út í
heim þökk sé IE og svo liggur upplýsingahraðbrautin
inn í nánast hvert hús með endalausu flæði
af afþreyingu. Enda fer það svo að kvöldin
fara oft í að dorma við sjónvarpið og
ég sé bara ekkert athugavert við það.
Mörg dýr leggjast hreinlega í híði
við þessar aðstæður. Við hjónin
höfum þó verið nokkuð dugleg við að
fara út að ganga en færið er svona heldur til
trafala.
26.12.03
Gleðileg jól allir nær og
fjær.
Að venju hefur aðventan verið nokkuð
annasöm og því hefur ekkert værið fært
í dagbók í heilan mánuð. Helst er
að nefna að ég hafði mig í að færa
vélar á milli Bronkóanna svo nú er 87
bíllinn komin með 91 Ranger vélina sem var í
84 Bronkónum. Af hverju hafa hlutina einfalda ef þeir
geta verið flóknir? Nú þarf ég bara
að klára að hirða það sem er nýtilegt
úr bláa Bronco og leggja honum síðan á
hin eilífu bílastæði.
Aðfangadagur jóla var afskaplega ánægjulegur.
Við borðuðum öll saman stórfjölskyldan
það er við hjónin ásamt börnum
tengdasonum (tilvonandi) og barnabarni. Þó vantaði
Sigurð Pétur en hann var hjá mömmu sinni.
Á jóladag fórum við svo í messu
og gönguferð á eftir og nú þegar þetta
er skrifað að áliðnum öðrum degi jóla
erum við að leggja af stað í kvöldverð
hjá Berglindi og Markúsi. Annars er hefð fyrir
því, eins og svo víða, að nota jóladagana
til að liggja og dorma við arineld eða sjónvarp
og njóta þess að slaka á og hvíla
sig.
Öllum vinum okkar nær og fjær sendum
við hugheilar óskir um gleðileg jól og farsæld
á komandi ári. Megi sá sem öllu ræður
varðveita ykkur og stýra för.
26.11.03
Alvöru afi.
Nú hlýt ég að teljast orðinn
alvöru afi. Við hjónin erum semsagt búin
að fara fyrstu ferðina með Rósu Elísabetu
til að gefa öndunum brauð. Hún borðaði
nú reyndar brauðið í kapp við endurnar
til að byrja með en svo skildi hún hvað átti
að gera en stuttu handleggirnir hennar dugðu nú ekki
alveg til að henda brauðmolum í hausinn á
öndum. Svo fórum við með hana að skoða
hundasýningu og þar var nú heldur kátt
í höllinni. Sem sagt afskaplega skemmtilegur dagur ekki
síst fyrir afa og ömmu.
Örlítill snjór hefur lagst yfir
höfuðborgarsvæðið svona rétt til að
nýta betur birtuna. Ekki hægt að kvarta undan því.
Óvissuárshátíðin
tókst með ágætum. Gestir voru boðaðir
á Grensásveginn og þeim gefið í staupinu
auk þess sem flutt voru skemmtiatriði. Því
næst var haldið af stað í tveimur rútum
og ekinn stundur hringur um hverfið og endað á Broadway
þar sem gestir nutu matar og stórskemmtilegrar dagskrár
sem nefnist Le' sing. Virtist uppátækið falla starfsmönnum
vel í geð.
12.11.03
Spenna í hámarki
Næstkomandi laugardag er fyrirhuguð árshátíð
starfsmannafélags Orkustofnunar og Íslenskra orkurannsókna
þar sem dagbókarritari er formaður. Ekkert hefur
verið gefið út um það hvar árshátíðin
verður haldin svo starfsmenn eru frekar spenntir. Ég
held að einhverjir geri sér vonir um að fljúga
eigi til Fjarskanistan og djamma þar en það er nú
varla hægt fyrir 2500 krónur ha ?
Þórður Ingi er farinn til Englands
að leita sér að vinnu eða eitthvað og má
fylgjast með framvindu mála á nýju blogg
síðunni hans http://doddi.blogdrive.com/
Ég hef ekki lagt í að skutlast
í sveitina en mér skilst að sveitasetrið okkar
sé orðið sneisafullt af ferfætlingum með
langt og mjótt skott. Þokkalegt það.
6.11.03
Eilíft sumar?
Það er nú að verða undarlegt
tíðarfar á Íslandi. Endalaus hlýindi
og blíða. Ekki svo að ég sé að
kvarta síður en svo. Bara ef við fáum einhvern
snjó svona um jólin og eftir áramótin.
Þórður er enn að skipuleggja strandhögg
erlendis og kannski verður kominn einhver botn í það
mál í næstu færslu.
29.10.03
Allt að gerast
Eitt og annað hefur gerst eins og vant er. Hæst
ber náttúrulega að Þórður Ingi
á afmæli í dag og er orðinn hvorki meira
né minna en 21 árs gamall og fær hann allar
okkar hamingjuóskir með það og eins hitt að
hafa nú loksins lokið bílprófatöku.
Hann er semsagt búinn að öðlast réttindi
til að aka leigubíl og RÚTUM og er það áfangi sem hann hefur beðið eftir
allt frá því að hann skrölti með
mér dögum saman í Ásgerði og öðrum
góðum fjallarútum þegar hann var ca fimm
ára gamall.
Sunna er enn að undirbúa flutning til
útlanda til að halda áfram námi en er nú
reyndar flutt til Magnúsar en hann ætlar með út
þegar og ef af verður.
Rósa Elísabet þroskast hratt
og örugglega og hleypur orðið um allt. Hún er
mjög dugleg og ákveðin og í alveg sérstöku
uppáhaldi hjá afa og ömmu. Hún er miklu duglegri
að blogga heldur en afinn.
Og daddaraddada . . . . við erum búinn
að kaupa einn bíl í viðbót og haldið
ykkur bara - sextán ára gamlan Bronco II. Reyndar
gæðabíl og eru myndir af
honum hér. Ég fór að gamni mínu
að rifja upp hvað ég hef átt af bílum: Ford 58, Ford Edsel 59, Ford Fairlane 65, Ford Bronco 66, Ford Bronco 72, Honda Civic, Ford PickUp 60, Dodge A100,
Austin Allegro, AMC Cherokee, Ford Bronco II 84,
Toyota Corolla 91, Ford Bronco II 87. Ég
hlýt að eiga inni magnafslátt hjá Ford.
16.10.03
Enn einn mánuðurinn liðinn
Ojæja það virðist ekki eiga fyrir
mér að liggja að halda dagbók af neinu viti.
Frá síðustu færslu hefur ýmislegt
á dagana drifið. Ég fór m.a. austur á
Hérað og setti upp lýsingu í Gaukshreiðrið
sem Leikfélag
Fljótsdalshéraðs er að setja upp. Það
eru nú komið fjögur ár síðan ég
flutti að austan en ég er enn aðalljósameistari
félagsins. Verð að fara að sleppa takinu á
þessu virðulega embætti. Mér sýnist
á verkefnalista félagsins að ég hafi lýst
28 sýningar af þeim 42 sem þar eru tilgreindar.
Ég fór reyndar austur í Víðihlíð
eina helgina og gekk frá þakskeggjum og öðru
smálegu. Svo höfum við farið á tónleika
með Magnúsi Eiríks og KK og þeir voru ekki
slakir !! Þá fórum við á stórtónleika
með Diddú, Kristni og Sverri. Og ekki voru þeir
síðri.
Það hafa því ekki verið
miklar tómstundir til dagbókarskrifa og ég
er svona að stelast til að slá eitthvað inn í
hádegispásunni.
Ekki náðist þátttaka í
fyrirhugaða árshátíð ÍSOR/OS
á Akureyri. Var því ákveðið að
hafa óvissuárshátíð og veit nú
enginn hvar eða hvernig hún verður. Það
kemur í ljós 15. nóvember.
17.09.03
Byggingarframkvæmdirnar
Ein og fram kemur í bókuninni hér
fyrir neðan var stefnt á framkvæmdahelgi í
Víðihlíð þann 6. og 7. september. Eftir
hádegi á föstudegi fékk ég lánaða
stóru kerruna hjá Vestfjarðaleið og sótti
byggingarefnið, 3 stk 4x4, 10 plötur af bárujárni,
22 stk 2x4, 14 lista 1x2, 10 lista 2x2, tvo balla af steinull, 5
krossviðarplötur og 10 spónaplötur. Og það
tók 3 og hálfan klukkutíma að fá
efnið afgreitt. Ég segi nú bara "ÓÓÓ
MÆÆÆ GOOOOD ". Síðan var brunað
austur og farið snemma að sofa. Upp á laugardagsmorgni
og hafist handa. Fáeinar
myndir voru teknar. Er skemmst frá að segja að
bíslagið reis (þótt lokafrágangur
sé eftir), gamla raflínan út í fjárhús
var tekin niður, settar voru upp hillur í geymslu, háaloftið
var tæmt, plantað var víði í limgerði
og eitthvað fleira sýslað. Þannig að sjá
má að ekki var slegið slöku við. Eitt skyggði
þó á. Einhver árans pest var að ganga
og veiktust flestir úr vinnuflokknum þegar heim var
komið. Er vandséð að nokkur fáist framar
til að leggja okkur lið við framkvæmdir.
Annars er allt með kyrrum kjörum. Þórður
er kominn heim úr hóteldvölinni og er að
velta vöngum yfir því hvað hann á að
gera af sér í vetur. Fjölskyldan frísk
og vel haldin (eftir að áðurnefnd magapest sleppti
tökum á okkur). Nóg að gera í vinnunni
enda borað af krafti eftir heitu vatni og útlit fyrir
ennþá meiri boranir á næsta ári
vegna aukinnar áherslu á gufuvirkjanir til raforkuframleiðslu.
03.09.03
Það haustar
Hálfgerð haustveðrátta þessa
dagana. Útsynningur og heldur vætusamt. Það
gerir samt ekkert til þar sem tíðin í sumar
hefur verið einstaklega góð. Um síðustu
helgi fórum við loksins í löngu áætlaða
ferð inn á afrétt. Fórum á tvemur
jeppum, Markús og Berglind á sínum Land Cruiser
jeppa og Við Inga Rósa á okkar gamla Bronco. og
með okkur voru líka Ásta systir mín og
Haukur hennar maður. Og auðvitað var Rósa Elísabet
með en Sigurður Pétur var upptekinn við annað.
Byrjuðum á að fara í Kerlingarfjöll og
gista þar. Ókum síðan norður fyrir fjöllin
og austur um Illahraun í Setur sem er skáli 4x4 klúbbsins
sunnan undir Hofsjökli. Þaðan lá leið
austur yfir Fjórðungssand og um Norðurleit suður
með Þjórsá og enduðum i Gljúfurleit
og gistum þar. Heldur seinfarið á köflum en
við fengum blíðskapar veður og feikna skyggni.
Yndislegur dagur. Grill og fáeinir lítrar af rauðvíni
um kvöldið. Héldum síðan um Gljúfurleit
og Skúmstungur til byggða. Stöldruðum við
í Víðihlíð til að undirbúa
byggingarhelgina miklu sem nú fer í hönd. Ég
verð að muna að taka eitthvað af myndum af sveitasetrinu
okkar og smella þeim hér inn.
25.08.03
Batnandi manni er best að lifa
Nú eru ekki nema 11 dagar frá síðustu
færslu. Kannski tekst mér að þétta
þær enn meir. Nú ber til tíðinda að
ég hafði loksins dug í mér til að setja
inn myndir úr Frakklandsferðinni góðu sem
farin var fyrir nærri tveimur árum og sömuleiðis
frásögn Ingu Rósu af ferðinni. Fór
með frúnni norður í land um helgina og vorum
þar viðloðandi aðalfund Skógræktarfélags
Íslands. Mikill hugur er í skógræktarmönnum
og gleður mig og marga fleiri að nú eru menn komnir
á þá skoðun að ekki sé sjálfgefið
að planta skuli trjám í hvern lausan landskika
sem býðst. Við ætlum samt að planta í
Víðhlíð en reynum að velja heppilegar
tegundir og skipuleggja plöntunina þannig að hún
falli að landinu.
14.08.03
Kominn úr sumarfríi
Allt tekur enda og sumarfríið líka.
Fríinu skipti ég í þrennt; keyrði
rútu í þrjár vikur, fór í
þriggja daga hálendisferð með frúnni
og fleirum og endaði á vikuferð til Englands þar
sem við fórum meðal annars í þriggja
daga gönguferð í Devon á suður Englandi.
Myndir úr Englandsferðinni er að finna hér.
Þar sem verkefni hafa staflast nokkuð upp í vinnu
verður ekki fært meira að sinni en reynt verður
að gera grein fyrir ferðalögunum síðar.
10.07.03
Kominn í sumarfrí
Jæja þá er ég kominn í
sumarfrí en er nú samt að snudda við að
leysa einhver mál tengd ÍSOR svona yfir netið.
En á morgun legg ég af stað í 6 daga hringferð
sem rútubílstjóri fyrir Vestfjarðaleið.
Inga Rósa er farin austur á land og ætlar að
ganga úr Vöðlavík út á Barðsnes
og verja svo skála í Breiðuvík í
viku. Við ætlum síðan að hittast fyrir
austan í kríng um mánaðarmótin júlí
ágúst. Ýmis plön eru um ferðalög
svo sem um Gæsavatnaleið og göngu á Cornwall
skaga en það skýrist nú allt síðar.
3.07.03
Langt er nú liðið frá
færslum
Það verður að viðurkennast
að sennilega hentar mér ekki að halda úti
dagbók. Fært inn á þriggja til fjögurra
mánaða fresti - ja svei. Ýmislegt hefur nú
gengið á í veröldinni bæði nær
og fjær. Ég býst við að ef einhver kíkir
hér inn og les þá hafi hann fylgst glöggt
með fréttum og læt því hjá
líða að tíunda almenn tíðindi.
Þá er það fjölskyldan.
Þórður er orðinn stúdent og puðar
nú á Edduhótelinu að Laugum í Sælingsdal
og unir hag sínum hið besta (ef marka má bloggsíðuna hans). Svo hrapalega vildi til í ættarmótsferð
í Garðinn að sá sem hér skrifar ók
rútunni helst til geyst yfir hraðahindrun og hryggjarliður
í Markúsi féll saman og hefur hann verið
óvinnufær síðan. Þau eru reyndar öll
í sólarlandaferð þessa dagana og láta
vel af sér. Rósa Elísabet dafnar og stækkar.
Hún var í heimsókn hjá afa og ömmu
á dögunum og fékk að æfa sig að labba í garðinum. Sunna er enn að velta fyrir
sér hvað hún ætlar að gera í
skólamálum. Er enn hálf volg að fara út
í meira nám og er að horfa á Kanada.
Allt búið að vera á haus í
vinnunni en nú heitir vinnustaðurinn ekki lengur Rannsóknasvið
Orkustofnunar heldur Íslenskar orkurannsóknir. Eins
og við var að búast tókst ekki að ljúka
undirbúningi og ýmislegt óklárt ennþá.
Drög að heimasíðu eru þó komin í gang.
14.04.03
Febrúar og mars
Þótt ekki sé nema miður
apríl finnst manni eiginlega að vorið sé komið.
Heima í garði er gljámispillinn nærri allaufgaður,
sumarblómin berjast um og einmana geitungur villtist inn
í bílskúr til mín í fyrradag,
mér til blandinnar ánægju. Tókst loks
að klára að fella tvær aspir (ég byrjaði
á verkinu í fyrravor). Rósa Elísabet
tútnar út og bítur allt og alla með tönnunum
sínum tveimur. Eins og við mátti búast bloggar hún á
fullu. Nú stefnir í stúdentsútskrift
í vor. Þórður Ingi er að ljúka
þeim merka áfanga að fá hvíta húfu
á kollinn. Sunna Björk vinnur og vinnur og stefnir enn
að viðbótarnámi erlendis og Berglind og Markús
byggja og byggja. Semsagt allt undir kontról og í
lukkunnar velstandi.
Lögin um Íslenskar orkurannsóknir
runnu í gegnum þingið á síðasta
degi svo nú snýst vinnan meira og minna um undirbúning
aðskilnaðar frá Orkustofnun.
4.02.03
Er janúar virkilega búinn?
Er það ekki hreint með ólíkindum
hvað tíminn flýgur ! Ýmislegt hefur á
dagana drifið eins og gengur. Jeff Stewart, sem er skoskur norðmaður
kom í heimsókn - loksins. Fórum með hann
um Hengilssvæðið og á Nesjavelli og Þingvöll
í grimmdarfrosti og síðan gullhringinn í
ennþá meira frosti. Tókst okkur næstum
því að frysta gamla manninn en með fljótandi
fæði tókst að ná yl í hann aftur.
Rósa Elísabet dafnar prýðilega og allir
í fjölskyldunni sæmilega frískir nema sá
sem hér skrifar. Var frá af kvefpest í nærri
tvær vikur en er loksins að lagast. Gleðileg tíðindi
- við endurnýjuðum hljómflutningstækin
á heimilinu en það var síðast gert 1974
um jól .
Nú virðist ljóst að Orkustofnun
verði skipt upp á miðju ári og ROS verði
að Íslenskum orkurannsóknum. Frumvarpið á
þó eftir að fara gegnum þingið en við
vinnum í samræmi við að það verði
samþykkt.
9.01.03
Gleðilegt nýtt ár
Enn eitt árið er runnið í
aldanna skaut og nýtt gengið í garð.Áramótin
fóru vel fram og heldur virðist sem dregið hafi úr
úthaldi landans við flugeldaskothríð. Berglind
og Markús voru ásamt börnum á Akureyri
en Sunna og Þórður voru í foreldrahúsum
og einnig borðuðu Ásta systir mín og hennar
fjölskylda með okkur og heilsuðu nýju ári.
Það má með sanni segja að
síðasta ár hafi verið viðburðaríkt
í lífi fjölskyldunnar. Við hjónin
komin á nýja vinnustaði, fimmtugs- og tvítugsafmæli,
fyrsta barnabarnið fætt og margt fleira. Efst í
huga er þakklæti til skaparns fyrir gott og gæfuríkt
ár. Nýja árið heilsar með sumarblíðu,
t.d. var 6 stiga hiti klukkan 8:30 í morgun. Það
þarf auðvitað ekki að orðlengja það
að skíðafæri er afleitt en afskaplega notalegt
að koma út á morgnana.
29.12.02
Milli hátíða
Jóladagarnir liðu eins og venjulega með
ofáti og letilífi. En þrátt fyrir annríkið
og umstangið eru jólin yndislegur tími. Við
hjónin fórum í fjölskyldujólasöng
í Hjallakirkju síðasta sunnudag í aðventu
og var það notaleg stund. Á aðfangadag var
fjölskyldan öll samankomin á heimili okkar þ.e.
að undanskyldum Sigurði Pétri sem var hjá
mömmu sinni. Við fórum í Hjallakirkju samkvæmt
venju og áttum síðan góða kvöldstund
saman yfir mat, gjöfum og öllu því sem aðfangadegi
tilheyrir. Jóladagur er einkanota hjá okkur og höldum
við okkur heima þann dag við arineld og afslöppun.
Annan dag jóla vorum við síðan samankomin
heima hjá Sunnu og borðuðum þennan líka
fína kalkún sem hafði verið eldaður í
nýja eldhúsinu hjá Berglindi og Markúsi.
Í gær renndum við síðan upp í
Borgarnes og heilsuðum uppá Ólaf móðurbróðir
minn og Ingu konu hans.
Þá er bara að brynja sig fyrir
flugeldaskothríðina sem verður umfangsmeiri með
hverju árinu.
8.12.02
Rósa Elísabet Markúsdóttir
Litla dótturdóttirin var vatni ausin
í dag og hlaut nafnið Rósa Elísabet. Athöfnin
fór fram í Garðakirkju að viðstöddum
nánustu ættingjum. Preatur séra Hans Markús
Hafsteinsson. Ömmurnar voru skírnarvottar og við
Þórður Ingi lékum fyrir sálmasöng.
Skírnarveislan haldin á heimili okkar að Hjallabrekku
38. Yndislegur dagur.
19.11.02
Þrek og tár
Ég var svo heppinn að komast austur á
Hérað um helgina og gat því séð
sýningu Leikfélags Fljótsdalshéraðs
á leikritinu Þrek og tár á laugardagskvöld.
Ég náði nefnilega ekki að sjá rennsli
með ljósunum sem ég setti inn tveimur vikum fyrir
frumsýningu. Var nokkuð ánægður en hefði
auðvitað breytt ýmsu hefði ég haft tíma
til að vera með lengri tíma. Sýningin að
öðru leyti bráðskemmtileg og vel heppnuð.
Leikarahópurinn misgóður eins og alltaf gerist
þó enginn áberandi lélegur en margir
góðir. Til hamingju LF.
14.11.02
Lagstur í híði?
Ég er greinilega handónýtur
dagbókarritari og mætti halda að ég væri
lagstur í híði. Svo er nú ekki en það
er eins og hverdagurinn rati einhvernveginn ekki inn í dagbókina.
Kannski þykir ekki fréttnæmt þegar lífið
gengur sinn vanagang. Ég nenni ekki orðið að
æsa mig út af prófkjörum og pólitískum
hráskinnaleik sem nú ber hæst í fjölmiðlum.
Ekki þarf að kvarta undan tíðarfari
því þótt kominn sé miður nóvember
er ekki komiin nein vetrartíð. Frostlaust að mestu
og hæglætisveður með einstaka pústi.
29.10.02
Áfangi
Nú jæja maður svo sem eldist. Yngsta
afkvæmið hann Þórður Ingi er nú
orðinn 20 ára. Ja hérna hvað tíminn
líður hratt. Eins og það er stutt síðan
ég hljóp úr kennslu í löngu frímínútum
til þess að taka á móti honum. Í
kvöld verður fjölskyldan saman í mat af þessu
tilefni.
Ég fann það líka eftir helgina
að aldurinn færist yfir. Var sumsé austur á
Egilsstöðum í ljósavinnu. Hófst handa
um sjöleitið á föstudag og hengdi upp ljós
og græjaði tól og tæki. Kláraði
að setja inn "cue" - in einhverntímann um tvöleitið
aðfaranótt mánudags. LF á orðið
mjög vandað ETC Expression borð sem er náttúrulega
ekkert annað en bylting miðað við gömlu handstýrðu
tveggja presetta borðin sem mér þóttu svo
fullkomin í eina tíð og leystu af hólmi
gömlu vírmótstöðurnar frá nítjánhundruðsextíuogeitthvað
sem ég notaði fyrst.
25.10.02
Ljósavinna
Þá er nú enn og aftur komið
að því að fara inn í myrkviði Valaskjálfar
á Egilsstöðum og "hengja upp luktirnar".
Framundan er semsagt frumsýning hjá Leikfélagi
Fljótsdalshéraðs og ég flýg austur
til að lýsa.
07.10.02
Helgin liðin
Jæja þá er helgin liðin. Bjórkvöldið
tókst með ágætum þótt mæting
hefði mátt vera betri. Eins og Frikki The sagði gjarnan
um Djasshátíðir á Egilsstöðum:
"Það komust fleiri að en vildu". Ferðin
á Suðurnesin var ekki síðri. Við Baldur
fórum á nýjasta bíl Brunavarna á
Héraði sem hvorki var með virkar þurrkur né
kælikerfi í lagi. Allt fór þó vel
og við komumst í Garðinn - í seinna lagi þó.
Ferðin með bjórflutningabílnum hans Fúsa
varð bráðskemmtileg. Gömlu hlekkirnir áttu
saman ánægjulega kvöldstund á Glóðinni
og hlakka ég til að sjá þau öll aftur
eftir tvö ár.
4.10.02
Helgin framundan
Upp er runninn föstudagur og þá er upplagt að
skrá nokkrar slitrur. Framundan er bjórkvöld
með skólafélögum úr Rafiðnaðarskólanum
og síðan ætlar gamalt lið sem setti svip á
landsþing og aðalfundi SVFÍ að hittast. Má
þar nefna Brandmajór af Héraði, Buxnaþjóf
úr Grundarfirði, Wiskíkút úr Neðra
og marga fleiri. Öllu saman stjórnar svo týndi
hlekkurinn úr Garðinum. Það verður skrautleg
samkoma og líklega verður ekki halli á rekstri
ÁTVR í ár :-)
23.09.02
Haustferð starfsfólks OS
Síðastliðinn laugardag þ.e.
21. september fór starfsfólk Orkustofnunar í
haustferð. Farið var um Hellisheiði og áð
til að skoða jarðborinn Jötunn, ýmsar borholur
og hveri. Síðan var gengið af Ölkelduhálsi
til Nesjavalla. Þokan var svo svört að menn sáu
vart til að kasta af sér vatni. Þar sem fjöldi
jarðfræðinga var í för þurfti ekki
að treysta á GPS tækni til að rata. Leiðsögumaðurinn
tók bara upp næsta stein, klauf hann með hamrinum
sínum og ákvað þannig hvort við værum
á réttum stað. Á Nesjavöllum var síðan
farið í heita potta og snætt lambakjöt. Afbragðs
dagur. Til fróðleiks má geta þess að
gengnir voru samtals 9,9 kílómetrar og tekin 8594
skref, barferðir meðtaldar.
18.09.2002
Nýtt hlutverk
Þá er nú fyrsta barnabarnið
komið í heiminn. Berglind og Markús eignuðust
gullfallega dóttur í nótt. Mikill spenningur
í fjölskyldunni. Sjá má nokkrar myndir
af prinsessunni í faðmi fjölskyldunnar á
slóðinni http://photos.yahoo.com/markushp og á þeim væntanlega eftir að fjölga.
Sömuleiðis eru nokkrar myndir hér.
16.09.2002
Vinnuferð í Víðihlíð
Hef víst ekki getið þess áður
en við eigum jarðarskika og hús austur í Gnúpverjahreppi.
Vorum þar um helgina við vinnu. Rifum niður vatnsmiðstöð
og lögðum fyrir rafmagnsofnum. Fórum í heimsókn
á bæi og var boðið upp á rauðvín
og heitan pott. Ætti að fara mikið oftar í
sveitina.
11.08.2002
Verð að fara að hætta
Hélt um helgina stórkostlega útihátíð
á Hamarsheiði (með hjálp góðra
manna og kvenna). En það er víst ekki hægt
að mjólka þetta afmæli mikið lengur.
Kíkið á myndir frá
hátíðinni
07.08.2002
Merk tímamót
Þá skall á enn eitt afmælið
og núna eru liðin heil 50 ár frá því
að ég fæddist. Mætti í vinnu eins
og vant er en seinni hluta dags var ég færður út
á Reykjavíkurflugvöll og sendur í flugtíma.
Þar sem plássið á vefþjóninum
er takmarkað ætla ég ekki að reyna að lýsa
flugferðinni. (les: frábær). Fórum síðan
í mat í Fjöruborðið. Ekki slæmur
dagur það. Rétt að geta þess að ég
var eiginlega búinn að halda afmælisveislu á
Lagarfljótsorminum austur á Héraði fyrr
í sumar. En þetta er nú svona þegar tilefni
gefst er um að gera að nota það vel.
|