Þetta VAR hjólið
mitt Suzuki DR 350 Off Road...og þetta var hjólið
mitt KTM 300EXC ....og þetta var líka hjólið mitt KTM 200EXC og þetta ER hjólið mitt KTM 400 EXC
Smellið á myndirnar til að stækka
Þennan texta setti ég inn
smá saman meðan ég var að hjóla á ,
og breyta Súkkunni. Ég læt hann halda sér
hér inni þó ég sé búinn að
selja hana, ef einhver heði gagn eða bara gaman að
því að lesa þetta.
Svo held ég hér fyrir neðan samskonar dagbók
um KTM-ið ef það er eitthvað markvert sem ég
geri eða breyti....
|
Hér er nú
hjólið mitt, og er uppáhalds dótið mitt
þessa daganna. Þetta er Suzuki DR-350 off road ´99 og
er að að mestum hluta orginal. DR-inn er frábært
hjól
til að leika sér á í traili og endurói,
einfalt og öruggt og ótrúlega
viðhaldslítið. Þetta er nú engin
keppnisgræja svona óbreytt og á ekkert afgangs
í hestöflum, en þar sem ég er nú bara
að byrja í þessu þá dugir þetta
mér fullkomlega, og nýti ég aldrei þann
kraft sem er fyrir hendi nema á beinum köflum og í
löngum brekkum. Svo er hægt að kaupa í
það 435 cc kit seinna meir, sem er vist tóm hamingja
og kemur vel út viðhaldslega og krafturinn eykst til muna.
 |
 |
 |
 |
|
| Ég og Súkkan í pásu |
Gulli við Lyklafell |
Jón seigur í ánum |
Ég og Gunni í góðum
skreppitúr |
Sölvi, Gulli og hjólin
á Skjaldbreið
í frábærum harðfennistúr |
Það sem ég er búinn að gera fyir
hjólið er að ég byrjaði á að kaupa
nýja mun öflugri pönnu frá CRD sem hefur
margborgað sig, þar sem hún hlífir
hjólinu vel fyrir grjótum og hnullungum sem rekast upp
undir hjólið eða í mótorkinnina og
gætu valdið miklum skaða.
Einnig keypti ég stellhhlíf ( frameguard ) frá CRD
sem hefur hlíft stellinu mjög vel gagnvart nuddi og
hnjaski.
Á stýrinu eru hlífar frá Acerbis og
þær eru búnar að spara manni ófáar
skrámurnar og kúplings og bremsu handföng.
Ég fékk hjólið með stærra
aðalljósi en gengur og gerist almennt, en þetta er
eins lugt og í Ástralíu útgáfunni.
Það sem allir gera til að fá hjólið til
að "anda" betur er að opna loftboxið betur og skar
ég alveg toppinn úr því (júni 2000),
einnig
opnaði ég pústkútinn betur þ.e.
tók innan úr honum drullumsullið ( spark arrestor
o.fl. ) og setti nýtt rör aftur úr honum sem er
álíka svert og greinin í stað þessa
nálarauga sem var fyrir, og svo varð að jetta upp
á nýtt, þetta frískar hjólið upp
til muna og það verður mun léttara og
sprækara.
Svo að sjálfsögðu er búið að skipta
út keðjunni fyrir IRIS X-ring keðju og aftur
tannhjóli fyrir Talon stálhjól.
 |
 |
 |
 |
| Verið að skrúfa Honduna |
Félgarnir aðeins að pása |
Gunni sigraður, fastur
í sandbleytu |
...ég er alveg að
gefast upp strákar... |
Þetta er frábært hjól fyrir mig, sem vil ekki
liggja meira en ég nenni í að gera við og kaupa
varahluti. En EF eitthvað kemur uppá þá er
þetta með eifaldari hjólum ti að gera við.
Auðvitað er passað upp á að smyrja á 1500
km. fresti og þannig, en það eru engar gírkassa
eða vélabilanir, heldur bara rúllar og rúllar,
bæði fram og til baka. Bara stíga á bak og rasa
út, fara í góða túra og komast með
allt í heilu lagi til baka ( 7 - 9 - 13 )
|
 |
 |
 |
 |
| Ég og Súkkan |
Flottur staður |
Hlöðufell í baksýn |
Smá taktar |
Ég skipti um stýri, fékk mér
álstýri af KTM sem er beinna og þá
bætist ásetan til muna, ekki sami
hjólbörufílingurinn, heldur þvingar mann
í réttari ásetu. Breytingarnar sem ég
gerði í april 2002 eru þær að ég
smíðaði í félagi við Kristinn
Einarsson pústkút, í staðinn fyrir draslið
sem var á orginal og ég var búinn að opna
hvort eð er. Hann var smíðaður úr
ryðfríu stáli og er mjög opinn, þannig
að hjólið andar vel, en er þá líka
hávært.Samt sem áður ekki eins mikið
blikkhljóð og í hinum kútnum, heldur bara
svona þungt fjórgengishljóð, enda
fóðraður með ull. Hér fyrir neðan eru
myndir af honum. Kosnaðurinn við þetta var
ótrúlega lítill eða efniskosnaður upp
á 3000 kr.Svo tókst mér að brjóta
kúplingshandfangið, og fékk mér í
staðinn handfang af KTM sem er frábært.
|
 |
 |
 |
 |
Með nýtt gult universal
plast og ísdekk |
Gulli nautnabelgur með
nýjasta hjólið í flotanum
KTM 520 EXC |
Svona er hann svo ákominn |
Pústkúturinn undir hlífinni |
Jæja þá gerðist það. Pantaði
mér 435 kit frá Thumper racing. Þetta er alveg
ný slíf og stimpill, og svo fylgja pakningar og fl.
með. Gulli hjálpaði mér að taka sundur
mótorinn, setja saman og stilla, en ég lét
þá í Kistufelli bora út cylenderinn fyrir
slífinni.
Svo varð að jetta upp á nýtt og eftir mikla leit
virðist 135 main hafa verið málið, sem er minni jet
en ég var með áður.
Ekki dugði þetta mér nú alveg, fékk
líka framdempara undan Kawasaki KX lánaða og setti
á Súkkuna. Þetta er allt annað líf.
Mótorinn upp um ca 11 Hp og ekki má gleyma torkinu, og
nýjir (gamlir) demparar að framan, bara allt annað
hjól.
Þó að orginal framföðrunin æti allt
smádrasl upp til agna, þá er munurinn sá
að núna stendur hjólið hærra í
strókinu, og maður er meira í control, Það
er allt þéttara. Einnig er hægt að kaupa
stífari gorma frá t.d. Race Tech til að fá
fram svipaða framfjöðrun, verðið á
þeim er ca.10000 hjá JHM. Svo er fílingurinn
með þennan mótor eins og hjólið sé
10 kg léttara.
Nú er ekkert mál að rífa það upp
á afturdekkið, og það hefur mikið meira afl og
tork í brekkurnar.
Er maður kannski kominn á Suzsaki DR 435 ?
|
 |
 |
 |
 |
| Allt í sundur |
Nýja slífin kominn í |
Loftboxið |
Smá munur á gamla og
nýja stimplinum ( 85cc) |
Setti W.E.R. stýrisdempara á hjólið í
Mars og þurfti lítið eitt að mixa það.
Platan sem kemur á milli brettis og triple clamp var fyrir KTM
svo að ég varð að lengja hana og bora upp á
nýtt. Einnig er orginal brettið þannig að
það er örlítið hærra fyrir framan
boltana sem festa það, sem hefði orðið fyrir
botnplötunni á demparanum, en Acerbis brettið sem
ég átti var slétt að ofan og passaði
fínt. Einnig er talað um spacera fyrir Suzuki og fleiri
hjól með ljósum, þannig að ég setti
skinnur á milli til að lækka hann
örlítið svo hann sleppi betur við
ljósið. Festingin í stellið var svo
heimasmíðuð úr rústfríu og
soðin við...ekkert pjatt.Nú virknin er notturlega
snilldin ein, og þótt Suzuki DR sé ekki fyrsta
hjólið sem mönnum detti í hug að
vanti stýrisdempara ( til að gera stöðugt að
eðlisfari ) þá er þetta mikill munur, sér
í lagi í grjóti og skorningum, maður heldur
lausar um stýrið og fl......eins og stelpurnar segja .."
þetta veitir manni mikla öryggiskend ..... ;-) "
 |
 |
 |
 |
| W.E.R. framanfrá |
.....og frá hlið |
Tilbúinn á Klaustur |
Flott birta. |
Það greip mig einhver bölvuð vitleysa og ég SELDI
hjólið 31.8´03. Er að velta fyrir mér
hvað ég eigi að fá mér í
staðinn, trúlega verður það 2stroke 250
krossari, vonandi RM, en ég ætla að skoða
málið....
Þar kom að því, að ég verslaði
KTM 300 EXC ´99 2stroke. Þetta er hjól sem er
að ég held í fínu lagi og ég er
spenntur að prófa, enda aalllltt annað setup en gamla
hjólið.
Smá yfirhalning...skipti um fóðringu í
festingu fyrir afturdemparann, stýrishöldur og
loftsíu. Einnig fékk ég mér 48 tanna
stál tannhjól frá Taloon og Xring Iris keðju.
Svo föndraði ég mer viðað koma verkfærum
fyrir á hjólinu og setti smá tösku með
því léttasta, undir hraðamælinn ofan
á ljósið. Svo var ég búinn að lesa
um miklar pælingar sem menn áttu í og settu
smá poka með felgujárnum og öxullyklum og
þess háttar í hliðina á loftboxinu.
Þetta prófaði ég og það virðist
ekki hafa nein áhrif á hjólið og maður er
laus við að burðast með þetta um mittið.
Svo tókst mér að beygla stýrið,
þannig að ég skipti um það í
janúar og sett nýja bremsuklossa að aftan.
 |
 |

|

|
| Katoomið að verða svartara... |
..og hérna orðið svart...flott ha. |
Léttur morguntúr á nýja hjólinu í janúar
|
|
Mars: Setti svartar hliðarhlífar, afturbretti og
ljóskúpul sem ég fékk notað hjá
Gulla, set trúlega fljótlega svart frammbretti
líka... er svona hægt og rólega að
útrýma þessum orange lit.
April: Skipti um stýri, setti hærra WRP, sem er mun betra.
Einnig kláraði að gera hjólið svart, með
bretti og tankhlífum.
Mai: Fannst hjólið vera svolítið kvikt og
ég notaði 1 gírinn nánast ekkert, tók
alltaf af stað í öðrum, nema í brölti
dauðans. Þannig að ég prófaði að
setja einni tönn stærra tannhjól að framan,
fór í 14 tennur, og ég er ekki frá
því að hjólið sé skemmtilegra,
lengri gírar og fyrsti og annar gírinn nothæfari.
Þannig að nú er gírunin 14/48. Það
fór að leka pakkdós í framdemaranum,
þannig að ég fór með hjólið til
Ragga töfralæknis og hann fixaði málið og
skipti um glussa. Einnig fann hann að hjólalegurnar að
framan voru orðnar daprar, þannig að þær voru
líka endurnýjaðar.
Hraðamælirinn er óvirkur vegna barkaleysis. Er að
spá í hvort ég fari í að setja GPS
í staðinn, eða hvað ...?
>Seldi 300 hjólið 22.des og fékk nýtt KTM 200exc 30.des. Er að skrúfa dekkin með gold skrúfum og gaman að sjá hvað það gerir, einnig setti
ég handahlífar og stýrisdemparann. Grjótpannan kemur með næstu sendingu ásamt réttu nálinni í torinn.
Grjótpannan fór undir og númerin á. Setti NOZD nálina í og þá kom í ljós að þetta var allt of ríkt. Eftir smá tilraunir komumst við að því að
NOZE nálin í #3, með pilot 45 og 180 main er málið fyrir +-5°c hita. Einnig var settur ádrepari í bandi fyrir ísinn.... nauðsinlegt stöff.
15.3.2006 Margt búið að bralla, en það helst að skipt var um stimpil í 116.5 tímum. Eftir nánari pælingu,........ þá er ekkert brall búið að vera, nema skipta um olíu og bensín. Magnað hvað
er hægt að nota svona 2-stroke og halda því í mjög góðu lagi með mjög litlu viðhaldi. Snilldin ein. Reyndar ætla ég að skipta um gorma á næstunni í dempurum, vegna þess að 200 hjólið kemur með
gormum sem eru ætlaðir 65 kílóa mönnum. Raggi ætlar að panta Race Tech gorma, progressivann að aftan, og .42 kg að framan, sem ætti að vera spott on fyrir mig.
200 hjólið var svo selt á vordögum og keypt 400exc. Svart plast factory límmiðakitt og Akrapovic pústkútur var málið, og svo var stýrisdemparinn fluttur yfir. Þetta er besta hjól sem ég hef átt
. Alger snilld. Fékk mér svo annað gjarðasett sem ég hef götudekkin á á sumrin ( sem by the way er ótrúlega gaman í bland ) og naglana á veturna. Þannig er ekkert mál að svissa á milli.
Lækkaði fyrst gíringuna, en er kominn aftur í orginal, held að hún sé bara helv... fín. Hef ekkert meira að segja í bili nema það að þetta hjól er alger snilld. Punktur.
|
Myndir frá
hjólatúrum 2003
Myndir frá
hjólatúrum 2004
Hjóladagbók
2004
Smá hjólaspaug

Heim
|