Guðlaug Margrét Steinsdóttir er af vinum og kunningjum oftast kölluð Gulla.

Gulla er fædd 16. maí 1977 á Akureyri. Ólst hún upp í sveitasælunni í Bárðardal. Hóf hún skólagöngu sína í Barnaskóla Bárðdæla. Í 8.- 10. bekk var það svo Stórutjarnaskóli. Eftir 10. bekk lagði hún leið sína til Akureyrar og stundaði nám þar. Lauk hún stúdentsprófi af náttúrufræðibraut VMA vorið 1998. Meðan á Akureyrardvöl Gullu stóð hitti hún pilt, Sigurjón Friðrik að nafni, þau giftu sig vorið '98 en skildu aftur haustið '05. Það tók Gullu ár að ákveða sig hvað hún vildi læra eftir VMA. Að lokum varð þó nudd fyrir valinu. Þá var flutt til Reykjavíkur og sest á skólabekk. Fyrst í Fjölbrautarskólanum við Ármúla og svo Nuddskóla Íslands. Í desember 2002 útskrifaðist hún svo sem nuddari. Í dag vinnur Gulla sem þjónustufulltrúi hjá Símanum og sem nuddari.

 

gullams@simnet.is