Uppskriftahaugur ömmu
Blýantur

Til baka

 

  All Bran brauð:  
  2 bollar
1 bolli
2 bollar
2 bollar
1 tsk.
1 tsk.
All Bran
púðursykur
mjólk
hveiti
lyftiduft
salt
rúsínur, ef vill
 

  All Bran og púðursykur sett í skál og mjólkinni hellt yfir. Hrært lauslega saman. Hræran síðan látin bíða í 1 klst. Þá er lyftiduftinu hrært saman við hveitið sem svo er jafnað út í það sem fyrir er í skálinni. Síðan er hrærunni jafnað varlega saman, ekki hrært ! Bakað í smurðu jólakökuformi í 1 klst.

Aths. ömmu:
Sumum finnst þetta brauð of sætt, þá má minnka sykurmagnið - en þá gæti þurft að setja meiri mjólk svo brauðið verði ekki of þurrt. Mjög gott nýbakað með smjöri.

(Uppskrift sem ég fékk frá Sigríði Stefánsdóttur, "Siggu á Sjafnar")

 

Matreiðslubækur í hillu