Uppskriftahaugur ömmu
Blýantur

Til baka

 

  Brúnkaka:  
  250 gr.
2
375 gr.
500 gr.
1 tsk.
1 tsk.
1 tsk.
2+1/2 dl.
smjörlíki
egg
púðursykur
hveiti
matarsódi
negull
kanill
mjólk
rúsínur
 

  Sykur og egg þeytt, smjörlíkið síðan sett útí og þessu hrært vel saman. Hveitið vigtað og lyftidufti, kryddi og rúsínum hrært saman við hveitið áður það er sett útí það sem búið er að hræra. Mjólkin hrærð í síðast. Bakað við meðalhita. Deigið passar í eitt hringform eða tvö löng form.

Aths. ömmu:
Auk neguls og kanils má nota ýmislegt annað krydd í þessa köku, svo sem engifer, allrahanda, múskat, kardimommur eða "brúnkökukrydd". Ég breyti sífellt til og nota 2-4 kryddtegundir til skiptis og í magni eftir hvernig liggur á mér þann daginn.

(Hef ekki hugmynd um hvar ég fékk þessa uppskrift, hef notað hana mjög lengi)

 

Matreiðslubækur í hillu