|
| Hafrakex: |
|
400 gr.
300 gr. 200 gr. 1+1/2 tsk. 1+1/2 tsk. 250 gr. |
haframjöl
hveiti sykur lyftiduft hjartarsalt smjörlíki mjólk eftir þörfum |
|
Öllu blandað saman og hnoðað. Mjólk bætt í ef þarf, gæta þess þó að setja ekki of mikla mjólk, svo deigið verði
of blautt. Deigið flatt frekar þunnt út og kexkökurnar skornar út undan glasi. Kökurnar pikkaðar með gaffli,
settar með hæfilegu millibili á smurða bökunarplötu og bakaðar í um það bil 10 mín. við 200°C hita.
Sérlega gott hafrakex, best smurt með smjöri !
Aths. ömmu: (Uppskrift frá systur minni, Ólöfu Dómhildi Jóhannsdóttur) |