|
| Herragarður: |
|
250 gr.
250 gr. 500 gr. 2 1 tsk. 1 tesk. |
smjörlíki
sykur hveiti egg hjartarsalt sítrónudropar rabarbarasulta |
|
Öllu - nema sultunni auðvitað - hnoðað saman. Tertumótin smurð og dustuð að innan með smávegis hveiti svo
kökurnar festist síður við botninn. Deigið síðan flatt út svona 1/2 cm þykkt og skorið undan tertumóti.
Sett í botn mótanna. Rabarabasulta síðan smurð yfir, ekki mjög þykkt. Það sem eftir er að deiginu flatt út
og skorið í um það bil 1,5 cm breiðar lengjur með kleinuhjóli - eða bara hníf sé kleinuhjól ekki við hendina.
Lengjurnar síðan lagðar yfir sultuna þannig að 3 lengjur eru settar þvert yfir mótið og síðan aðrar þrjá
lengjur þvert yfir þær lengjur þannig að deiglengjurnar myndi einskonar grind ofan á sultunni. Afgangurinn
af deiginu skorinn á sama hátt og lengja lögð með fram börmum mótsins, þannig að hún hylji enda lengjanna.
Bakað við meðalhita. Geymist vel og alveg ágætlega í frysti. Þetta verða 2-3 kökur, eftir stærð tertumótanna.
Aths. ömmu: (Uppskrift ættuð frá tengdamóður minni, Helgu Hjálmarsdóttur) |