Uppskriftahaugur ömmu
Blýantur

Til baka

 

  Kanilkaka:
 
  Kakan er fremur þétt í sér en safarík.  
  125 gr.
2 1/2 dl.
2
4 dl.
2 1/2 tsk.
1/2 tsk.
2 tsk.
3 dl.

Kanilsykur:
1 dl.
1 tsk.
smjör eða smjörlíki
sykur
egg
hveiti
lyftiduft
salt
vanillusykur
súrmjólk


sykur
kanill
 

  Smyrjið kringlótt form, gjarnan með lausum botni, 24 sm í þvermál eða 1 1/2 lítra.
Hrærið saman smjör og sykur. Setjið eggin út í, eitt í einu og hrærið vel á milli. Blandið lyftidufti, salti og vanillusykri saman við hveitið og hrærið þessu smám saman út í eggjahræruna, til skiptis við súrmjólkina.
Hellið helmingnum af deiginu í formið og breiðið það jafnt út.
Blandið saman sykri og kanil og stráið yfir deigið. Setjið það sem eftir er af deiginu yfir og stráið dálitlum kanilsykri yfir að lokum.
Bakstur: Bakið neðarlega í ofninum við 175°C í 1 klukkutíma.
Losið kökuna úr forminu og látið hana kólna á grind. Breiðið yfir hana.
Geymsla: Geymist í lokuðu íláti eða plastpoka í 4-6 daga. Í frysti í allt að 6 mánuði.

Köku, sem er bökuð í formi með föstum botni, verður að hvolfa fyrst á disk og síðan á grind þannig að stökkt yfirborðið snúi upp.

Aths. ömmu:
Ég hef rekið mig á að hræra þurfi þetta deig nokkuð vel svo kakan verði ekki of laus í sér. Einnig þarf að gæta þess að setja ekki of mikið af kanilsykrinum ofan á kökuna, hann vill harðna við bökunina og kakan getur þá ekki lyft sér til fulls.

Góð kaka og vinsæl á mínu heimili.

(Uppskrift úr Stóru bakstursbókinni, bls.163)
 

Matreiðslubækur í hillu