Uppskriftahaugur ömmu
Blýantur

Til baka

 

  Konfekt-terta:  
  250 gr.
250 gr.
250 gr.

smjör (ekki smjörlíki !)
sykur
hveiti
þeyttur rjómi á milli botna
hjúpsúkkulaði ofan á tertuna
 

  Öllu hnoðað saman og deiginu skipt í 4 hluta. Meðalstór tertuform smurð. Deigið er of mjúkt til að hægt sé að fletja það út, svo því er það bara jafnað út í formin með höndunum. Reynt að hafa alla deigbotnana jafnþykka - ég vigta deigið og deili með fjórum, til að fá jafna botna. Bakað við um það bil 180°C þar til fallega ljósbrúnt.
Þeytti rjóminn settur á milli og látið bíða í ísskáp yfir nótt til að mýkja botnana - má ekki frjósa, þá verður rjóminn fljótandi. Súkkulaðið brætt og smurt ofan á kökuna. Skreytt eftir vild. Algjört sælgæti.

Aths. ömmu:
Mér finnst ágætt að bleyta aðeins í botnunum áður en rjóminn er settur á þá, með sherrý eða koníaki eða einhverju öðru sem andinn innblæs.

(Uppskrift fengin frá Halldóru Haraldsdóttur)

 

Matreiðslubækur í hillu