Uppskriftahaugur ömmu
Blýantur

Til baka

 

  Kryddkaka með sultu:  
  75 gr.
2
2 dl.
1 1/2 dl.
3 dl.
1 1/2 tsk.
1/2 tsk.
1/2 tsk.
1 tsk.
30 gr.
1 dl.
smjör eða smjörlíki
egg
sykur
súrmjólk
hveiti
matarsódi
kanill
engifer
negull
sultaður og hakkaður appelsínubörkur (uppskrift hér)
rifs- eða sólberjasulta
 

  Smyrjið 1 1/2 lítra form og stráið í það brauðraspi. Bræðið smjörið og kælið. Þeytið saman egg og sykur. Setjið súrmjólkina saman við.
Blandið saman hveiti, matarsóda, kanil, engifer, negul og appelsínuberki. Hrærið því út í deigið. Setjið sultuna út í og síðast kælt smjörið eða smjörlíkið. Hellið deiginu í formið.
Bakstur: Bakið neðarlega í ofninum við 175°C í um 55 mínútur. Hvolfið kökunni á rist, breiðið klút yfir hana og látið hana kólna áður en hún er skorin.
Geymsla: Í lokuðu íláti eða plastpoka í 6-8 daga. Í frysti í allt að 6 mánuði.

Kryddkökubitar:
12-15 stykki. Hellið deiginu í litla, 20x30 sm, smurða ofnskúffu með brauðraspi í. Bakið kökuna í 55 mínútur. Kælið. Skerið kökuna í bita og skreytið með því að sigta flórsykur yfir.

Aths. ömmu:
Mjúk og safamikil kryddkaka sem klárast fljótt. Ég hef til þessa ekki nennt að sulta appelsínubörk, kaupi bara mjúkt súkkat úti í búð og nota í staðinn.

(Uppskrift úr Stóru bakstursbókinni, bls.162)
 

Matreiðslubækur í hillu