|
|
Franskar múffur (25 stk.): |
| Í Frakklandi eru þessar kökur kallaðar Madeleiner. Þetta eru léttar og góðar kökur sem bakaðar eru í sérstökum ávölum og riffluðum formum en auðvitað má baka þær í venjulegum kringlóttum formum. |
|
2
2 1 1/2 dl. 1 dl. 1/2 dl. 1/2 tsk. 100 gr. Til skrauts: |
egg
eggjarauður sykur rifinn börkur af 1/2 sítrónu hveiti kartöflumjöl lyftiduft smjör eða smjörlíki flórsykur |
|
Smyrjið formin vel. Ef ekki eru til sérstök form fyrir múffurnar má vel nota álform.
Þeytið eggin og eggjarauðurnar með sykrinum þar til blandan er létt. Setjið sítrónubörkinn út í. Blandið saman hveiti, kartöflumjöli og lyftidufti og sigtið það saman við deigið. Bræðið smjörið og hellið því varlega út í deigið og hrærið. Setjið deigið í formin. Setjið ekki meira í formin en 2/3. Bakstur: Bakið neðst í ofni við 200°C í 10 mínútur. Látið kökurnar kólna aðeins í formunum áður en þeim er hvolft á grind. Sigtið flórsykri yfir kökurnar áður en þær eru bornar fram. Geymsla: Í lokuðu íláti í 1-2 daga. Í frysti, án flórsykurs, í allt að 3 mánuði.
Aths. ömmu: |