Uppskriftahaugur ömmu
Blýantur

Til baka

 

  Pönnuskonsur:  
  2
1-2 msk.
2-3 msk.
2-3 msk.
250 gr.
2-3 tsk.
1/2 tsk.
egg
nýmjólk eða súrmjólk
matarolía
sykur
hveiti
lyftiduft
salt
 

  Eggið þeytt og mjólkin og matarolían þeytt útí. Lyftiduftinu og saltinu blandað saman við hveitið og það svo hrært smátt og smátt útí. Ef deigið verður of þykkt er sett meira af mjólk eða súrmjólk útí, deigið á að vera nokkuð þykkt en þó ekki þykkara en svo að renni fljótt út á pönnunni. Bakað á smurðri pönnukökupönnu. Snúið við þegar efri hliðin er orðin næstum þurr. Gæta þarf þess að hafa ekki of mikinn hita svo skonskurnar brenni ekki að neðan meðan beðið er eftir að þær þorni í gegn.

Aths. ömmu:
Bestar nýbakaðað með smjöri og osti. Upplagt að baka bara það magn sem reikna má með að borðað verði strax og geyma svo afganginn af deiginu í lokuðu íláti í ísskáp og baka svo eftir hendinni. Deigið geymist í 2-3 daga í ísskáp.
Ég hef aldrei prófað að frysta skonsur, en það er vel hugsandi að það sé bara í lagi - og þíða þær svo í örbylgjuofni ef hugmyndin er að borða þær volgar.

(Uppskrift fengin frá systur minni, Ólöfu Dómhildi Jóhannsdóttur - hún bakar svo góðar skonsur ! )

 

Matreiðslubækur í hillu