Uppskriftahaugur ömmu
Blýantur

Til baka

 

  Sacherterta:  
  150 gr.
1 msk.
3/4 bolli
6
1 bolli
6
1+1/4 bolli
1/3 bolli
mjólkursúkkulaði
vatn
smjör
eggjarauður, þeyttar
flórsykur
eggjahvítur
hveiti, sigtað
aprikósumauk til að hafa ofan á kökuna
 

  Súkkulaðið brotið í litla bita og sett í skál ásamt vatninu. Brætt saman í vatnsbaði. Smjörinu síðan hrært útí þar til það er bráðið. Því næst er þeyttu eggjarauðunum bætt útí og hrært stöðugt í á meðan. Svo er sykrinum bætt útí og allt þeytt vel saman. Blandan er látin kólna í um það bil 10 mínútur. Eggjahvíturnar stífþeyttar og útí þær bætt til skiptis súkkulaðiblöndunni og hveitinu. Hrært varlega saman. Bakað við 160 C° hita.
Í uppskriftinni er gert ráð fyrir að bakað sé í einu formi og volgu aprikósumauki (1/3 bolla) smurt ofan á og súkkulaðikremi 1 smurt þar ofan á.

Aths. ömmu:
Þetta er ein af mörgum uppskriftum sem ég hef rekist á og er sögð vera hin eina og sanna upprunalega austurríska Sachertorte. Hvort það sé rétt eða ekki skal látið ósagt, en þetta er mjög góð kaka.
Ég baka þessa köku venjulega í tveim formum og set súkkulaðikrem 2 á milli botnanna og síðan súkkulaðikrem 3 ofan á kökuna og á hliðarnar því mér finnast þessi krem betri en það sem fylgir uppskriftinni.

(Uppskrift úr "Complete round-the-world cookbook", útg. 1961)
 

Matreiðslubækur í hillu