|
| Stríðsterta: |
|
Botnar:
125 gr. 125 gr. 3 200 gr. 1 tsk. 1 msk. 4 msk. Marengs: 3 150 gr. Fylling: 2 dl. |
smjörlíki sykur eggjarauður hveiti lyftiduft vanillusykur rjómi eggjahvítur sykur eplamauk þeyttur rjómi |
|
Smjörlíkið hálfbrætt og hrært vel saman við sykurinn. Eggjarauðurnar síðan hrærðar útí, ein í einu. Hveiti,
lyftiduft og vanillusykur sigtað saman við og rjómanum bætt útí. Látið í 2 smurð lausbotna tertumót og bakað
í 20 mín. við 175°C (350°F).
Eggjahvíturnar stífþeyttar og sykrinum blandað varlega saman við og haft tilbúið þegar botnarnir hafa bakast í 20 mín. en þá eru þeir teknir út úr ofninum og smurðir hratt með marengsnum og settir aftur inn í ofninn og bakaðir áfram við sama hita í 20 mín. Botnarnir lagðir saman þegar þeir eru orðnir kaldir, með þykku lagi af eplamauki og álíka þykku lagi af þeyttum rjóma.
Aths. ömmu: (Uppskrift úr bæklingnum Kökubókin 2, sem Smjörlíki ehf gaf út fyrir margt löngu) |