|
|
Sultaður appelsínubörkur: |
| Saxaður appelsínubörkur eða skorinn í strimla er bæði bragðgott og skemmtilegt skraut. Notað bæði sem bragðefni og skraut í margs konar bakstur og krem. |
|
Sykurlögur: 2 1/2 dl. 2 1/2 dl 1/2 tsk. |
börkur af 4 appelsínum
vatn sykur vatn sítrónusýra |
|
Þvoið appelsínurnar áður en þær eru afhýddar. Sjóðið börkinn í ríflegu vatni í 10-15 mínútur.
Skolið hann í köldu vatni. Skerið burt alla hvítuna á berkinum.
Sjóðið saman sykur og vatn. Setjið appelsínubörkinn út í og sjóðið við vægan hita þar til hann er orðinn glær eða í 1 - 1 1/2 klukkutíma. Setjið heitan börkinn í lokaða krukku. Sjóðið sykurlöginn áfram þar til hann er orðinn þunnur. Hellið honum heitum yfir börkinn í krukkunni. Lokið henni strax og kælið. Geymsla: Í ísskáp í 1-2 mánuði. Má frysta bæði með og án sykurlagarins.
Aths. ömmu: |