Uppskriftahaugur ömmu
Blýantur

Til baka

 

  Sykurvöfflur:  
  150 gr.
3 stk.
1+1/2 dl.
1+1/2 tsk.
1+1/2 dl.
smjörlíki
egg
sykur
lyftiduft
hveiti
 

  Smjörlíkið brætt og látið kólna. Egg og sykur þeytt vel saman og hálfköldu smjörlíkinu hellt út í. Síðast er hveitinu ásamt lyftiduftinu hrært út í. Bakað eins og venjulegar vöfflur. Þessar vöfflur verða mjög stökkar og bragðgóðar og eru bestar nýbakaðar, með sultu og þeyttum rjóma.

Aths. ömmu:
Þessar vöfflur eru svo góðar að óþarft er að nota kökudropa, þótt það sé vitanlega smekksatriði.

(Uppskrift ættuð frá tengdamóður minni, Helgu Hjálmarsdóttur)

 

Matreiðslubækur í hillu