Uppskriftahaugur ömmu
Blýantur

Til baka

 

  Vínarbrauð:  
  2 bollar
3 bollar
4 msk.
100 gr.
3 tsk.
1

hveiti
haframjöl
sykur
smjörlíki
lyftiduft
egg
mjólk eftir þörfum
rabarbarasulta í fyllinguna
 

  Egginu skipt í tvennt og helmingur settur til hliðar til að smyrja ofan á vínarbrauðin, hinn helmingurinn fer í deigið. Öllu (nema sultunni) hnoðað saman og mjólk bætt út í eftir þörfum þannig að deigið loði vel saman en sé meðfærilegt til að fletja út.
Deigið flatt út í um það bil 1/2 cm þykkt, um það bil 15-16 cm breitt (eftir hversu breið vínarbrauðin eiga að verða) og heldur styttri en breidd bökunarplatnanna. Rabarbarasultan smurð í miðjuna eftir endilöngu deiginu og deigið síðan brotið yfir eins og á vínarbrauðslengjum og sett á smurða plötu. Penslað að ofan með egginu og ef vill má strá (grófum) sykri yfir. Bakað við meðalhita, þar til fallega brúnt. Lengjurnar síðan skornar í hæfilega stór vínarbrauð.

Aths. ömmu:
Ugglaust má vel nota aðra fyllingu en rabarbarasultu, eins og til dæmis sveskjusultu eða einhverja aðra sultu.
Ef fólki finnast vínarbrauðin fullbragðlítil má setja svona 1/2-1 tesk. af salti í deigið, en það er þó smekksatriði.
Geymist ágætlega í frysti.

(Uppskrift ættuð frá tengdamóður minni, Helgu Hjálmarsdóttur)

 

Matreiðslubækur í hillu