Uppskriftir Helgu Sigurðardóttur
Blómalína

Til baka

 

  Ástarkranzar:  
  250 gr.
100 gr.
60 gr.
1
1 1/2 matskeið
 
hveiti
smjörlíki
sykur
egg
rjómi
vanilla eða sítrónuhýði
 

  Hveitinu er sáldað á borð. Smjör og sykur mulið saman við. Vanilla eða smásaxað sítrónuhýði látið saman við. Hnoðist með egginu og rjómanum. Látið bíða stundarkorn á köldum stað. Gerðar úr þessu þunnar, ca. 10 cm. langar, lengjur. Tvær og tvær snúnar saman og gjörðar að kranz. Dýft í eggjahvítu og grófan sykur. Látið á smurða plötu og bakað ljósbrúnt við góðan hita.

(Úr bókinni "Bökun í heimahúsum" eftir Helgu Sigurðardóttur)

 

Húsmóðir að elda