Uppskriftir Helgu Sigurðardóttur
Blómalína

Til baka

 

  Ávaxta-rjómakökur:  
  125 gr.
75 gr.
75 gr.
25 gr.
1/2

hveiti
sykur
smjörlíki
möndlur
egg
þeyttur rjómi
blandaðir ávextir eða ávaxtamauk
 

  Möndlurnar afhýddar og saxaðar smátt. Hveitinu sáldað á borð. Smjörlíkið og sykurinn mulinn saman við. Vætt í með egginu. Möndlurnar látnar í og hnoðað þar til það er sprungulaust. Fletjist út. Smámót, smurð að utan, látin á hvolf og kakan látin yfir með keflinu. Þrýst vel að börmunum. Mótin látin á plötu. Bakað í 10 mínútur. Kælt. Fyllt með einhverjum ávöxtum og skreytt með þeyttum rjóma, sem sprautað er úr poka, og ávextir ofan á.

(Úr bókinni "Bökun i heimahúsum" eftir Helgu Sigurðardóttur)

 

Húsmóðir að elda