Uppskriftir Helgu Sigurðardóttur
Blómalína

Til baka

 

  Blómkálssúpa:  
  1
1 1/4 l.
30 gr.
25 gr.
2
blómkálshöfuð
kjötsoð
smjörlíki
hveiti
eggjarauður
Salt og sykur
 

  Bezt er að nota kálfskjötssoð. Blómkálið er soðið í kjötsoðinu, (sem er síað), þar til það er meyrt. Smjörlíkið brætt, hveitið hrært út í, þynnt út með kjötsoðinu. Þegar sýður, er blómkálið, sem tekið er í smá hríslur, látið út í, eggjarauðan hrærð með salti, súpan hrærð smátt og smátt út í eggjarauðuna, hellt í pottinn aftur, en má ekki sjóða. Salt og sykur sett í eftir geðþótta. Það er ekki nauðsynlegt að hafa kjötsoð, þá bara kálsoðið. Einnig má sleppa eggjarauðunum.

(Úr bókinni "150 Jurtaréttir" eftir Helgu Sigurðardóttur)

 

Húsmóðir að elda