Uppskriftir Helgu Sigurðardóttur
Blómalína

Til baka

 

  Brúnuð jarðepli:  
  1/2 kg.
20 gr.
2 matsk.
1 matsk.
jarðepli (kartöflur)
smjörlíki
sykur
vatn
 

  Bezt er, að jarðeplin séu smá og föst. Jarðeplin soðin og flysjuð, séu þau stór, eru þau skorin í jafna bita. Pannan er hituð, smjörlíkið er brúnað og sykurinn látinn á pönnuna. Þegar byrjar að koma þétt froða, eru jarðeplin látin á og vatnið. Hrært gætilega í jarðeplunum, þar til þau eru gljáandi og brún.

(Úr bókinni "Lærið að matbúa" eftir Helgu Sigurðardóttur)

 

Húsmóðir að elda