Uppskriftir Helgu Sigurðardóttur
Blómalína

Til baka

 

  Eplagrautur:  
  1/2 kg.
6 dl.
70 gr.
20 gr.
1 dl.
ný epli
vatn
sykur
jarðeplamjöl (kartöflumjöl)
kalt vatn
Mjólk
 

  Eplin eru þvegin og skorin í smátt með flusinu. Soðin í vatni, þar til þau eru komin í mauk, þá er þeim nuddað gegnum gatasigti. Sett í pottinn aftur, sykur látinn í og jafnað með jarðeplamjölinu, sem er hrært út í köldu vatni. Hrært í, þar til sýður. Hellt í skál og sykri stráð yfir. Borðað með sykri og mjólk. Séu notuð þurrkuð epli, þarf 125 g. af þeim.

(Úr bókinni "Lærið að matbúa" eftir Helgu Sigurðardóttur)

 

Húsmóðir að elda