Uppskriftir Helgu Sigurðardóttur
Blómalína

Til baka

 

  Finnskt kaffibrauð (85 stk.):  
  375 gr.
250 gr.
100 gr.

hveiti
smjörlíki
sykur
Egg til þess að bera ofan á
Saxaðar möndlur og sykur
 

  Hveitið er sáldrað, smjörlíki mulið í og sykrinum blandað saman við. Hnoðað. Búnar til lengjur, sem skornar eru í 3 cm. langa bita, sem smurðir eru með eggi og síðan dýft í möndlurnar og sykurinn. Settar á smurða plötu og bakaðar ljósbrúnar.

(Úr bókinni "Matur og drykkur" eftir Helgu Sigurðardóttur)

 

Húsmóðir að elda