Uppskriftir Helgu Sigurðardóttur
Blómalína

Til baka

 

  Fiskhringur með rauðaldinsósu:  
  250-300 gr.
1 tesk.
1 matsk.
1/6 tesk.
1
1/4 l.

4 sneiðar
beinlaus fiskur
salt
hveiti
pipar
egg
rjómi eða mjólk
Rauðaldinsósa
glóðarbakað hveitibrauð
 

  Fiskurinn hreinsaður og flattur og beinin soðin í saltvatni. Saxaður 5 sinnum í söxunarvél. Þá er saltinu hrært saman við og saxað 3 sinnum. Hveiti hrært í og saxað 2 sinnum, þ.e. 10 sinnum í allt. Þá er egginu og mjólkinni hrært í smátt og smátt. Hrært um stund. Bíði í 15 mín. Hringmót er smurt með óbræddu smjöri. Deigið hrært aftur og krydd látið í, ef þörf er. Látið i hringmótið og það soðið niðri í vatni í 20-30 mín. Hvolft á fat. Rauðaldinsósunni hellt yfir, og glóðarbökuðu (ristuðu) hveitibrauði raðað utan um og soðnum jarðeplum, ef maður vill. Rauðaldinsósan er búin til úr beinasoðinu.

(Úr bókinni "Lærið að matbúa" eftir Helgu Sigurðardóttur)

Aths.ömmu gömlu:
Nú til dags væri væntanlega bara keypt tilbúið fiskhakk eða fiskflak og fiskurinn ásamt lauknum hakkaður einu sinni í matvinnsluvél eða öðru rafdrifnu tæki, en eigi að síður eru grundvallarreglurnar góðar og gildar og líka mjög fróðlegt að kynnast hvað ætlast var til að húsmæður hér áður fyrr leggðu mikla vinnu í matargerðina.

 

Húsmóðir að elda