Uppskriftir Helgu Sigurðardóttur
Blómalína

Til baka

 

  Fiskisúpa:  
  1 kg.
2 l.
2 tesk.
4
50 gr.
1 dl.
1/2
40 gr.
100 gr.
2 dl.
fiskur
vatn
salt
lárberjablöð
hveiti
kalt vatn
gulaldin (sítróna)
sveskjur
sykur
vatn
Soðin jarðepli (kartöflur)
 

  Lesið um hreinsun á fiski. Þegar vatnið og saltið sýður, er fiskurinn látinn út í og lárberjablöðin. Soðinn þar til hann er laus frá beininu. Færður upp úr og soðið síað. Hveitið hrært út í köldu vatni og hrært út í súpuna. Hrært í, þar til sýður. Þá eru sveskjurnar soðnar, þar til þær eru meyrar en samt heilar, í 10 mín., og gulaldinflusið. Safinn úr gulaldininu er látinn út í, þegar súpan er soðin. Soðin jarðepli, sem eru smábrytjuð, eru látin út í, og gulræturnar, hafi maður þær. Fiskinum er raðað upp á fat og og soðnum jarðeplum í kring. Saxaðri steinselju er stráð yfir jarðeplin, ef hún er handbær. Fiskurinn er borðaðu með súpunni.
Aths. Í fiskisúpu er bezt heilagfiski (lúða) eða silungur, annars má nota hvaða fiskitegund sem er.
Einnig má jafna súpuna með jafningi nr.3.

(Úr bókinni "Lærið að matbúa" eftir Helgu Sigurðardóttur)

 

Húsmóðir að elda