Uppskriftir Helgu Sigurðardóttur
Blómalína

Til baka

 

  Fjallagrasate með sítrónusafa:  
  25 gr.
1 l.
50-100 gr.
fjallagrös
vatn
kandís eða annar sykur
 

  Grösin eru hreinsuð, soðin í 15 mín. í vatninu, síað á gasklút, safanum hellt í pottinn aftur og soðinn augnablik með sykrinum. Það gerir teið miklu ljúffengara og sérstaklega hollara, sé látinn sítrónusafi í það, þegar búið er að sjóða það með með sykrinum. Sérstaklega vil ég mæla með þessu tei sem kvefmeðali handa sjúklingum, er þá gott að setja það á hitabrúsa, svo hægt sé að drekka það sjóðandi heitt öðru hvoru.
Bæði sítrónusafa og sykur getur hver sett út í eftir sínum smekk. Þetta er ágætis drykkur, sem má drekka sér til hressingar í staðinn fyrir te eða kaffi að deginum, og er þá heppilegast og drýgst að setja sítrónusneið í hvern bolla, áður en teinu er hellt í hann.
1 fullur hnefi af grösum er 20 grömm.

(Úr bókinni "Grænmeti og ber allt árið" eftir Helgu Sigurðardóttur)

 

Húsmóðir að elda