|
| Kjöt með grænmeti (frikasse): |
|
1/2 kg.
1/2 kg. 1/2 kg. 1 l. 2 tesk. 40 gr. 40 gr. 1 tesk. |
lambakjöt
hvítkál gulrætur eða gulrófur vatn salt smjörlíki hveiti söxuð steinselja |
|
Beztur er frampartur af lamba- eða kálfakjöti. Kjötið er smáhöggvið, þvegið úr köldu vatni, heitu vatni
hellt á það. Látið ofan í soðið vatn með salti. Þegar sýður, er froðan veidd vel ofan af. Soðið í 15 mín.
Gulrófurnar og hvítkálið hreinsað og brytjað. Látið í pottinn og soðið í 20-30 mín.
Jafningur nr.2 er búinn til. Látinn út í pottinn og hrært gætilega í, þar
til sýður, því kjötið og grænmetið má ekki fara í sundur. Saltað eftir vild og saxaðri steinselju hrært
saman við. Hellt upp á fat.
Aths. Hægt er að nota minna af kjötinu og þá meira af grænmetinu. Annars má nota hvaða grænmeti sem er í þennan rétt; sérstaklega er gott að hafa grænar baunir í hann. Baunirnar eru þá settar út í sósuna. (Úr bókinni "Lærið að matbúa" eftir Helgu Sigurðardóttur) |